bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Jonah 2
Jonah 2
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 1
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 3 →
1
Drottinn sendi stóran fisk og lét hann gleypa Jónas og var Jónas í kviði fisksins í þrjá daga og þrjár nætur.
2
Úr kviði fisksins bað hann til Drottins, Guðs síns:
3
Í neyð minni kallaði ég til Drottins og hann svaraði mér. Úr djúpi heljar hrópaði ég á hjálp og þú heyrðir hróp mitt.
4
Þú varpaðir mér niður á hyldýpi á reginhafi, straumþunginn umlukti mig, allar bylgjur þínar og boðaföll gengu yfir mig.
5
Þá hugsaði ég: Ég er burt rekinn frá augum þínum. Samt mun ég enn fá að líta þitt heilaga musteri.
6
Vötnin ætluðu að drekkja mér, hyldýpið umlukti mig og þangið vafðist mér um höfuð.
7
Ég steig niður að rótum fjallanna og slagbrandar jarðarinnar skullu aftur að baki mér að eilífu. En þú leiddir mig lifandi upp úr glötunargröfinni, Drottinn Guð minn.
8
Er ég var að dauða kominn minntist ég Drottins og bæn mín kom fram fyrir þig í þínu heilaga musteri.
9
Þeir sem dýrka fánýta hjáguði hafa brugðið trúnaði við Drottin.
10
En ég vil færa þér fórn og syngja þér þakkarsálm. Heitið, sem ég hef unnið, vil ég efna. Hjálpin er hjá Drottni.
11
Þá bauð Drottinn fiskinum að spúa Jónasi upp á þurrt land.
← Chapter 1
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 3 →
All chapters:
1
2
3
4