bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Jonah 4
Jonah 4
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 3
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
1
Jónas fylltist mikilli gremju, honum brann reiðin
2
og hann sagði við Drottin: „Ó, Drottinn! Var það ekki einmitt þetta sem ég sagði áður en ég fór að heiman? Það var vegna þessa sem ég í fyrstu vildi flýja til Tarsis því að ég vissi að þú ert líknsamur og miskunnsamur Guð, þolinmóður og gæskuríkur, og þú iðrast ógæfunnar og lætur refsinguna ekki dynja yfir.
3
En nú, Drottinn. Taktu líf mitt því að mér er betra að deyja en lifa.“
4
Drottinn svaraði: „Gerir þú rétt er þú reiðist?“
5
Jónas hafði gengið út úr borginni og búið um sig fyrir austan hana í því skyni að reisa sér laufskála og setjast undir hann í skuggann og bíða þess hvað yrði í borginni.
6
Þá leiddi Drottinn Guð fram rísínusrunna. Hann óx yfir Jónas og varpaði skugga á höfuð hans og linaði beiskju hans og gladdist hann mjög af rísínusrunnanum.
7
En þegar birti af degi og roðaði af morgni sendi Guð orm sem stakk rísínusrunnann svo að hann visnaði.
8
Og er sól var á lofti leiddi Guð fram brennheitan eyðimerkurvindinn og sólin stakk Jónas í höfuðið svo að hann örmagnaðist. Þá óskaði hann sér dauða og sagði: „Ég vil heldur deyja en lifa.“
9
Guð sagði þá við Jónas: „Hyggurðu að þú reiðist með réttu vegna rísínusrunnans?“ Hann svaraði: „Ég geri rétt er ég reiðist til dauða.“
10
Þá sagði Drottinn: „Þú kennir í brjósti um rísínusrunnann sem þú hefur hvorki haft erfiði af né komið upp. Hann óx á einni nóttu og visnaði á einni nóttu.
11
Ætti ég ekki að sjá aumur á Níníve, hinni miklu borg, þar sem meira en hundrað og tuttugu þúsundir manna búa, sem þekkja vart hægri höndina frá þeirri vinstri, og að auki fjöldi dýra?“
← Chapter 3
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
All chapters:
1
2
3
4