bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Leviticus 1
Leviticus 1
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 2 →
1
Drottinn kallaði á Móse, talaði við hann úr samfundatjaldinu og sagði:
2
„Ávarpaðu Ísraelsmenn og segðu við þá: Þegar einhver ykkar ætlar að færa Drottni gjöf skuluð þið færa honum búfénað að gjöf, af nautgripum eða sauðfé.
3
Sé gjöf hans brennifórn af nautgripum skal það sem hann fórnar vera lýtalaust karldýr. Hann skal færa það að dyrum samfundatjaldsins til þess að hann hljóti velþóknun frammi fyrir augliti Drottins
4
og leggja síðan hönd sína á höfuð brennifórnardýrsins svo að hann hljóti velþóknun og friðþægt verði fyrir sekt hans.
5
Hann skal slátra nautinu frammi fyrir augliti Drottins en synir Arons, prestarnir, skulu síðan bera fram blóðið og dreypa því á allar hliðar altarisins sem stendur við inngang samfundatjaldsins.
6
Því næst skal hann flá brennifórnardýrið og hluta það niður.
7
Synir Arons, prestarnir, skulu setja eld á altarið og raða viði á eldinn.
8
Þá skulu synir Arons, prestarnir, raða stykkjunum, höfði og mör, ofan á viðinn sem er á eldinum á altarinu.
9
Innyfli og fætur skal hann þvo í vatni. Presturinn skal því næst láta það allt líða upp í reyk af altarinu. Þetta er brennifórn, eldfórn, Drottni þekkur ilmur.
10
Sé gjöf hans brennifórn af fénaði, af sauðfé eða geitum, skal það sem hann fórnar vera lýtalaust karldýr.
11
Hann skal slátra því við norðurhlið altarisins, frammi fyrir augliti Drottins. Synir Arons, prestarnir, skulu dreypa blóði þess á allar hliðar altarisins.
12
Hann skal hluta það niður og síðan skal presturinn raða stykkjunum ásamt höfði og mör á viðinn sem er á eldinum á altarinu.
13
Innyfli og fætur skal hann þvo í vatni. Presturinn skal því næst láta það líða upp í reyk af altarinu. Þetta er brennifórn, eldfórn, Drottni þekkur ilmur.
14
Sé gjöf hans til Drottins brennifórn af fuglum skal hann bera fram turtildúfu eða aðra dúfu að gjöf.
15
Presturinn skal færa hana að altarinu, snúa höfuðið af henni og láta það líða upp í reyk af altarinu. Blóðið skal kreist á hlið altarisins.
16
Því næst skal hann fjarlægja sarpinn með því sem í honum er og fleygja honum við hliðina á altarinu austan megin þar sem fórnaraskan er.
17
Því næst lætur presturinn fuglinn ofan á viðinn sem er á eldinum og lætur hann líða upp í reyk af altarinu. Þetta er brennifórn, eldfórn, Drottni þekkur ilmur.
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 2 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27