bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Leviticus 21
Leviticus 21
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 20
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 22 →
1
Drottinn sagði við Móse: „Ávarpaðu prestana, syni Arons, og segðu:
2
Prestur skal ekki saurga sig á líki einhvers ættingja sinna nema það sé af nánustu skyldmennum: móður hans, föður, syni, dóttur eða bróður.
3
Hann má saurga sig á líki ógiftrar systur sinnar; hún er honum nákomin af því að hún hefur ekki verið gefin manni.
4
En hann má ekki saurga sig á systur sinni sem gift er einhverjum ættingja hans. Hann mundi vanhelga sig.
5
Prestar skulu hvorki krúnuraka sig, jafna skegg sitt né rista sár í hörund sitt.
6
Þeir skulu vera helgaðir Guði sínum og mega ekki vanhelga nafn Guðs síns. Af því að þeim ber að færa fram eldfórnir Drottins, sem er matur handa Guði þeirra, eiga þeir að vera heilagir.
7
Prestar skulu hvorki taka sér skækju fyrir eiginkonu né spjallaða konu né konu sem eiginmaður hennar hefur skilið við því að prestur er vígður Guði sínum.
8
Hann skal vera þér heilagur því að hann ber fram mat Guðs þíns. Hann skal vera þér heilagur því að ég er heilagur, Drottinn, sem helgar ykkur.
9
Þegar dóttir prests vanhelgar sig með skækjulifnaði vanhelgar hún föður sinn. Hún skal brennd í eldi.
10
Sá prestur, sem er æðstur bræðra sinna og hefur verið smurður olíu á höfuð sitt og verið settur í embætti með því að skrýða hann klæðum embættis síns, skal hvorki láta hár sitt hanga laust né rífa klæði sín.
11
Hann má ekki saurga sig með því að snerta lík, ekki einu sinni lík föður síns eða móður.
12
Hann má ekki yfirgefa helgidóminn svo að hann vanhelgi ekki helgidóm Guðs síns því að helgi smurningarolíu Guðs hans er á höfði hans. Ég er Drottinn.
13
Æðsti presturinn skal taka óspjallaða mey sér fyrir eiginkonu.
14
Hann má ekki kvænast ekkju, fráskilinni konu, spjallaðri mey eða skækju heldur skal hann taka sér óspjallaða mey af þjóð sinni fyrir eiginkonu.
15
Hann má ekki vanhelga niðja sína á meðal ættbræðra sinna því að ég, Drottinn, helga hann.“
16
Drottinn talaði við Móse og sagði:
17
„Ávarpaðu Aron og segðu: Enginn niðja þinna, sem hefur líkamslýti, má ganga fram til að bera fram mat Guðs síns.
18
Enginn má ganga fram sem hefur líkamslýti, hvorki blindur maður né haltur, maður með klofna vör eða misvöxt,
19
fótbrotinn eða handleggsbrotinn,
20
krypplingur eða dvergur, maður með vagl á auga, með geitur eða útbrot eða kramin eistu.
21
Enginn niðja Arons með líkamslýti má ganga fram til að bera fram eldfórnir Drottins. Af því að hann hefur líkamslýti má hann ekki ganga fram til að bera fram mat Guðs síns.
22
En hann má samt eta af mat Guðs síns, hann má eta bæði af hinu háheilaga og af helgigjöfunum.
23
Hins vegar má hann hvorki ganga að fortjaldinu né nálgast altarið því að hann hefur líkamslýti. Hann má ekki vanhelga helgidóm minn því að ég, Drottinn, helga hann.“
24
Þetta sagði Móse við Aron og syni hans og alla Ísraelsmenn.
← Chapter 20
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 22 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27