bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Matthew 19
Matthew 19
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 18
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 20 →
1
Þegar Jesús hafði lokið þessum orðum fór hann úr Galíleu og hélt til byggða Júdeu handan Jórdanar.
2
Fjöldi manna fylgdi honum og þar læknaði hann þá.
3
Þá komu farísear til Jesú og vildu reyna hann. Þeir spurðu: „Leyfist manni að skilja við konu sína fyrir hvaða sök sem er?“
4
Jesús svaraði: „Hafið þið eigi lesið að skaparinn gerði þau frá upphafi karl og konu
5
og sagði: Fyrir því skal maður yfirgefa föður og móður og búa með konu sinni og þau tvö skulu verða einn maður.
6
Þannig eru þau ekki framar tvö heldur einn maður. Það sem Guð hefur tengt saman má eigi maðurinn sundur skilja.“
7
Þeir segja við Jesú: „Hvers vegna bauð Móse þá að gefa konu skilnaðarbréf og skilja svo við hana?“
8
Hann svarar: „Móse leyfði ykkur að skilja við konur ykkar vegna þverúðar ykkar en frá upphafi var þetta eigi þannig.
9
Ég segi ykkur: Sá sem skilur við konu sína, nema sakir hórdóms, og kvænist annarri drýgir hór.“
10
Þá sögðu lærisveinar hans: „Fyrst svo er háttað stöðu karls gagnvart konu, þá er ekki vænlegt að kvænast.“
11
Jesús svaraði þeim: „Það er ekki á allra færi að skilja þennan boðskap heldur þeirra einna sem það er gefið.
12
Sumir eru vanhæfir til hjúskapar frá móðurlífi, suma hafa menn gert vanhæfa, sumir hafa sjálfir gert sig vanhæfa vegna himnaríkis. Sá höndli sem höndlað fær.“
13
Þá færðu menn börn til Jesú að hann legði hendur yfir þau og bæði fyrir þeim en lærisveinar hans átöldu þá.
14
En Jesús sagði: „Leyfið börnunum að koma til mín, varnið þeim eigi því að slíkra er himnaríki.“
15
Og hann lagði hendur yfir þau og fór þaðan.
16
Þá kom maður til Jesú og spurði: „Meistari, hvað gott á ég að gera til þess að öðlast eilíft líf?“
17
Jesús sagði við hann: „Hví spyr þú mig um hið góða? Aðeins einn er góður. Ef þú vilt inn ganga til lífsins þá haltu boðorðin.“
18
Hann spurði: „Hver?“ Jesús sagði: „Þú skalt ekki morð fremja, þú skalt ekki drýgja hór, þú skalt ekki stela, þú skalt ekki bera ljúgvitni,
19
heiðra föður þinn og móður og þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.“
20
Þá sagði ungi maðurinn: „Alls þessa hef ég gætt. Hvers er mér enn vant?“
21
Jesús sagði við hann: „Ef þú vilt vera fullkominn skaltu fara, selja eigur þínar og gefa fátækum og þú munt fjársjóð eiga á himnum. Kom síðan og fylg mér.“
22
Þegar ungi maðurinn heyrði þessi orð fór hann brott hryggur enda átti hann miklar eignir.
23
En Jesús sagði við lærisveina sína: „Sannlega segi ég ykkur: Torvelt verður auðmanni inn að ganga í himnaríki.
24
Enn segi ég: Auðveldara er úlfalda að fara gegnum nálarauga en auðmanni að komast inn í Guðs ríki.“
25
Þegar lærisveinarnir heyrðu þetta urðu þeir steini lostnir og sögðu: „Hver getur þá orðið hólpinn?“
26
Jesús horfði á þá og sagði: „Menn hafa engin ráð til þess en Guði er ekkert um megn.“
27
Þá sagði Pétur við hann: „Við yfirgáfum allt og fylgdum þér. Hvað munum við hljóta?“
28
Jesús sagði við þá: „Sannlega segi ég ykkur: Þegar Guð hefur endurnýjað allt og Mannssonurinn situr í dýrðarhásæti sínu munuð þið, sem fylgið mér, einnig sitja í tólf hásætum og dæma tólf ættkvíslir Ísraels.
29
Og hver sem hefur yfirgefið heimili, bræður eða systur, föður eða móður, börn eða akra sakir nafns míns, mun fá allt hundraðfalt aftur og öðlast eilíft líf.
30
En margir hinir fyrstu verða síðastir og hinir síðustu fyrstir.“
← Chapter 18
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 20 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28