bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Matthew 20
Matthew 20
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 19
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 21 →
1
Jesús sagði þessa dæmisögu: „Líkt er um himnaríki og húsbónda einn sem gekk út árla morguns að ráða verkamenn í víngarð sinn.
2
Hann samdi við verkamennina um denar í daglaun og sendi þá í víngarð sinn.
3
Síðan gekk hann út um dagmál og sá aðra menn standa á torginu iðjulausa.
4
Hann sagði við þá: Farið þið einnig í víngarðinn og ég mun greiða ykkur sanngjörn laun.
5
Þeir fóru. Aftur gekk hann út um hádegi og nón og gerði sem fyrr.
6
Og á elleftu stundu fór hann enn út og sá menn standa þar. Hann spyr þá: Hví hímið þið hér iðjulausir allan daginn?
7
Þeir svara: Enginn hefur ráðið okkur. Hann segir við þá: Farið þið einnig í víngarðinn.
8
Þegar kvöld var komið sagði eigandi víngarðsins við verkstjóra sinn: Kalla þú á verkamennina og greið þeim kaupið. Þú skalt byrja á þeim síðustu og enda á þeim fyrstu.
9
Nú komu þeir sem ráðnir voru á elleftu stundu og fengu hver sinn denar.
10
Þegar þeir fyrstu komu bjuggust þeir við að fá meira en fengu sinn denarinn hver.
11
Þeir tóku við honum og fóru að mögla gegn húsbónda sínum.
12
Þeir sögðu: Þessir síðustu hafa unnið aðeins eina stund og þú gerir þá jafna okkur er höfum borið hita og þunga dagsins.
13
Hann sagði þá við einn þeirra: Vinur, ekki geri ég þér rangt til, sömdum við ekki um einn denar?
14
Taktu þitt og farðu leiðar þinnar. Ég vil gjalda þessum síðasta eins og þér.
15
Er ég ekki sjálfur fjár míns ráðandi? Eða sérðu ofsjónum yfir því að ég er góðgjarn?
16
Þannig verða hinir síðustu fyrstir og hinir fyrstu síðastir.“
17
Jesús hélt nú upp til Jerúsalem og á leiðinni tók hann þá tólf afsíðis og sagði við þá:
18
„Nú förum við upp til Jerúsalem. Þar verður Mannssonurinn framseldur æðstu prestum og fræðimönnum. Þeir munu dæma hann til dauða
19
og framselja hann heiðingjum svo að þeir hæði hann, húðstrýki og krossfesti. En á þriðja degi mun hann upp rísa.“
20
Þá kom móðir þeirra Sebedeussona til Jesú með sonum sínum, laut honum og vildi biðja hann bónar.
21
Jesús spyr hana: „Hvað viltu?“ Hún segir: „Lát þú þessa tvo syni mína sitja þér við hlið í ríki þínu hvorn til sinnar handar, annan til hægri handar þér og hinn til vinstri.“
22
Jesús svarar: „Þið vitið ekki hvers þið biðjið. Getið þið drukkið þann kaleik sem ég á að drekka?“ Þeir segja við hann: „Það getum við.“
23
Hann segir við þá: „Kaleik minn munuð þið drekka en ég ræð því ekki hver situr mér til hægri handar eða vinstri. Það veitist þeim sem faðir minn hefur ákveðið.“
24
Þegar hinir tíu heyrðu þetta gramdist þeim við bræðurna tvo.
25
En Jesús kallaði þá til sín og mælti: „Þið vitið að þeir sem ráða fyrir þjóðum drottna yfir þeim og höfðingjar láta menn kenna á valdi sínu.
26
En eigi sé svo meðal ykkar heldur sé sá sem mikill vill verða meðal ykkar þjónn ykkar.
27
Og sá sem vill fremstur vera meðal ykkar sé þræll ykkar.
28
Mannssonurinn er ekki kominn til þess að láta þjóna sér heldur til að þjóna og gefa líf sitt til lausnargjalds fyrir alla.“
29
Þegar þeir fóru frá Jeríkó fylgdi mikill mannfjöldi Jesú.
30
Tveir menn blindir sátu þar við veginn. Þegar þeir heyrðu að þar færi Jesús hrópuðu þeir: „Drottinn, miskunna þú okkur, sonur Davíðs!“
31
Fólkið hastaði á þá að þeir þegðu en þeir hrópuðu því meir: „Drottinn, miskunna þú okkur, sonur Davíðs!“
32
Jesús nam staðar, kallaði á þá og sagði: „Hvað viljið þið að ég geri fyrir ykkur?“
33
Þeir mæltu: „Drottinn, gefðu okkur sjón.“
34
Jesús kenndi í brjósti um þá og snart augu þeirra. Jafnskjótt fengu þeir sjónina og fylgdu honum.
← Chapter 19
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 21 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28