bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Nahum 1
Nahum 1
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 2 →
1
Spádómur um Níníve. Bók um vitrun Nahúms frá Elkós.
2
Drottinn er ákaflyndur Guð og heiftrækinn. Drottinn er heiftrækinn og fullur bræði. Drottinn hefnir sín á andstæðingum sínum og er langrækinn við fjendur sína.
3
Drottinn er seinn til reiði og máttugur, hann lætur engum óhegnt. Í fellibyljum og stormi er för hans og skýin eru rykið undan fótum hans.
4
Hann hastar á hafið, þurrkar það upp og lætur árnar þverra. Basan og Karmel fölna og blómi Líbanonsfjalls visnar.
5
Fjöllin skjálfa fyrir honum og hálsarnir gliðna. Jörðin skelfur fyrir honum, veröldin og allt sem í henni er.
6
Hver fær staðist bræði hans og hver þolað heiftarbál hans? Reiði hans hellist yfir sem eldur og björgin klofna fyrir honum.
7
Drottinn er góður, athvarf á degi neyðarinnar, hann annast þá sem leita hælis hjá honum,
8
jafnvel þegar vatnsflóðið æðir fram. Óvinum sínum gereyðir hann og hrekur þá út í myrkrið.
9
Hvað hyggist þér fyrir gegn Drottni? Hann gereyðir. Neyðin kemur eigi öðru sinni.
10
Eins og menn frávita af drykkju fuðra þeir upp, brenna til ösku eins og flækt þyrnikjarr, líkt og skraufþurr hálmur.
11
Frá þér fór hinn illviljaði sem bruggaði vélráð gegn Drottni.
12
Svo segir Drottinn: Þótt þeir séu fjölmennir og öflugir þá munu þeir afmáðir verða og farast. Hafi ég þjakað þig áður mun ég ekki þjaka þig framar.
13
Og nú brýt ég ok hans af þér og slít sundur fjötra þína.
14
En ákvörðun Drottins um þig er þessi: Enginn mun erfa nafn þitt, úr útskornum og steyptum skurðgoðum hofa þinna bý ég þér gröf, fyrirlitlega svo sem þú ert.
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 2 →
All chapters:
1
2
3