bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Nahum 2
Nahum 2
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 1
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 3 →
1
Sjá á fjöllunum fætur fagnaðarboðans, þess er friðinn kunngjörir. Hald hátíðir þínar, Júda, og efn heit þín. Illskan mun ekki koma yfir þig aftur, hún er afmáð með öllu.
2
Tortímandinn stefnir gegn þér. Vertu á verði og njósnaðu á vegunum. Gyrtu lendar þínar. Safnaðu þrótti.
3
Því að enn hefur Drottinn reist við sæmd Jakobs og vínvið Ísraels þótt spellvirkjar hafi rænt hann og spillt teinungum hans.
4
Skildirnir eru rauðblikandi, hetjurnar í purpuraklæðum. Það glóir á málm stríðsvagnanna, þeir eru búnir til atrennu og hestarnir prjóna.
5
Vagnarnir geysast inn á strætin, þeytast um torgin eins og logandi blys, leiftrandi eldingar.
6
Herforingjarnir eru kallaðir til en hrasa á leið sinni, hraða sér út að borgarmúrnum, þar er vígþakið þegar fyrir.
7
Flóðgáttum er lokið upp, skelfing grípur um sig í höllinni.
8
Gyðjan er fönguð, útskúfuð, ambáttir hennar kveina, líkt og dúfan barmar sér, og berja sér á brjóst.
9
Níníve er eins og lón sem vatnið fossar úr. „Stansið! Stansið!“ Enginn snýr við.
10
Rænið silfri! Rænið gulli! Sjóðurinn er óþrjótandi, ógrynni af hvers kyns dýrgripum!
11
Auðn, eyðing, gereyðing! Huglaus hjörtu, titrandi kné, skjálfandi lendar, litverp andlit.
12
Hvar er nú bæli ljónanna, hvar hellir ljónshvolpanna þar sem ljónið gekk óáreitt, ljónynjan og hvolparnir?
13
Þar sem ljónið tætti sundur bráðina svo að hvolparnir fengju fylli sína, og drap handa ljónynjum sínum, fyllti hella sína bráð og bæli sín ránsfeng.
14
Þín vitja ég, segir Drottinn allsherjar, læt vagna þína eyðast í eldi og ungviði þitt verða sverði að bráð. Ránsfeng þínum eyði ég af jörðinni. Raust sendiboða þinna mun ekki framar heyrast.
← Chapter 1
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 3 →
All chapters:
1
2
3