bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Nehemiah 11
Nehemiah 11
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 10
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 12 →
1
Leiðtogar fólksins settust að í Jerúsalem. Aðrir vörpuðu hlutkesti til að fá tíunda hvern mann til að setjast að í Jerúsalem, hinni heilögu borg. Níu tíundu voru um kyrrt í öðrum borgum
2
og fólkið blessaði alla þá menn sem af fúsum vilja settust að í Jerúsalem.
3
Þetta eru þeir leiðtogar skattlandsins sem bjuggu í Jerúsalem. Í borgunum í Júda bjó hver maður á sinni eign í heimaborg sinni: Ísraelsmenn, prestar, Levítar, musterisþjónar og niðjar þræla Salómons.
4
Í Jerúsalem bjuggu af niðjum Júda og Benjamíns: Af niðjum Júda: Ataja Ússíason, Sakaríasonar, Amarjasonar, Sefatjasonar, Mahalaleelssonar sem var niðji Peresar,
5
enn fremur Maaseja Barúksson, Kol-Hósesonar, Hasajasonar, Adajasonar, Jójaríbssonar, Sakaríasonar sem var afkomandi Sela.
6
Niðjar Peresar, sem bjuggu í Jerúsalem, voru alls fjögur hundruð sextíu og átta vopnfærir menn.
7
Niðjar Benjamíns voru: Sallú Mesúllamsson, Jóedssonar, Pedajasonar, Kólajasonar, Maasejasonar, Ítíelssonar, Jesajasonar
8
og á eftir honum Gabbaí Sallaí, alls níu hundruð tuttugu og átta vopnfærir menn.
9
Jóel Síkríson var foringi þeirra og Júda Hasnúason næstæðstur yfir borginni.
10
Af prestunum: Jedaja, Jójaríb, Jakín,
11
Seraja Hilkíason, Mesúllamssonar, Sadókssonar, Merajótssonar, Ahítúbssonar, höfðingi húss Guðs,
12
og embættisbræður þeirra sem veittu þjónustu í húsinu, alls átta hundruð tuttugu og tveir menn. Enn fremur Adaja Jeróhamsson, Pelaljasonar, Amsísonar, Sakaríasonar, Pashúrssonar, Malkíasonar
13
og bræður hans, tvö hundruð fjörutíu og tveir ættarhöfðingjar, og Amassaí Asareelsson, Ahasísonar, Mesillemótssonar, Immerssonar
14
og bræður hans, hundrað tuttugu og átta vopnfærir menn. Sabdíel Haggedólímsson var foringi þeirra.
15
Af Levítunum: Semaja Hassúbsson, Asríkamssonar, Hasabjasonar, Búnnísonar.
16
Sabbetaí og Jósabad voru þeir af leiðtogum Levítanna sem stjórnuðu þjónustunni við hús Guðs utanhúss
17
og Mattanja Míkason, Sabdísonar, Asafssonar, stjórnaði lofsöngnum og var forsöngvari þakkarsálmsins við bænagjörðina, Bakbúkja, sem var næstæðstur embættisbræðra sinna, og Abda Sammúason, Galalssonar, Jedútúnssonar.
18
Levítarnir í hinni heilögu borg voru alls tvö hundruð áttatíu og fjórir.
19
Hliðverðirnir: Akkúb, Talmón og embættisbræður þeirra sem gættu hliðanna, alls hundrað sjötíu og tveir menn.
20
Aðrir Ísraelsmenn, prestarnir og Levítarnir, bjuggu í hinum borgunum í Júda, hver á sinni eign.
21
Musterisþjónarnir bjuggu á Ófel og voru Síha og Gispa yfir þeim.
22
Ússí var foringi Levítanna í Jerúsalem. Hann var sonur Baní Hasabjasonar, Mattanjasonar, Míkasonar, einn Asafsniðja, en þeir áttu að syngja við guðsþjónustuna í húsi Guðs.
23
Um þá gilti konungleg tilskipun og ákveðin regla um hvað söngvararnir áttu að syngja á hverjum degi.
24
Petaja Mesesabeelsson, afkomandi Sera Júdasonar, var konungi til aðstoðar í öllu sem þjóðinni viðkom.
25
Í bæjunum og á sléttunum umhverfis bjuggu ýmsir af niðjum Júda: í Kirjat Arba og þorpum hennar, í Díbon og þorpum hennar, í Jekabeel og þorpum hennar,
26
í Jesúa, Mólada og Bet Pelet,
27
í Hasar Súal, í Beerseba og þorpum hennar,
28
í Siklag og Mekóna og þorpum hennar,
29
í En Rimmon, Sorea, Jarmút,
30
Sanóa, Adúllam og þorpum hennar, í Lakís og á sléttum hennar og í Aseka og þorpum hennar. Þannig komu þeir sér fyrir á svæðinu frá Beerseba að Hinnomssonardal.
31
Niðjar Benjamíns bjuggu í Geba, Mikmas og Aja, einnig í Betel og þorpunum þar í kring,
32
í Anatót, Nób, Ananja,
33
Hasór, Rama, Gittaím,
34
Hadíd, Sebóím, Neballat,
35
Lód og Ónó, í Smiðadal.
36
Nokkrir af flokkum Levítanna í Júda fluttu til Benjamín.
← Chapter 10
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 12 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13