bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Nehemiah 9
Nehemiah 9
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 8
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 10 →
1
Tuttugasta og fjórða dag þessa mánaðar söfnuðust Ísraelsmenn saman og föstuðu, klæddir hærusekk og með mold á höfði.
2
Niðjar Ísraels greindu sig frá öllum þeim sem voru af öðru þjóðerni, gengu fram og játuðu syndir sínar og afbrot feðra sinna
3
og tóku sér stöðu á sínum stað. Fjórðung dagsins var lesið úr lögmálsbók Drottins, Guðs þeirra, og annan fjórðung játuðu þeir syndir sínar og féllu fram fyrir Drottni, Guði sínum.
4
Jesúa, Baní, Kadmíel, Sebanja, Búnní, Serebja, Banní og Kenaní stóðu á Levítapallinum og hrópuðu hárri röddu til Drottins, Guðs síns.
5
Levítarnir Jesúa, Kadmíel, Baní, Hasabneja, Serebja, Hódía, Sebanja og Patahja sögðu: „Rísið upp og lofið Drottin, Guð ykkar, ævinlega. Lofað sé þitt dýrlega nafn þó að það sé hafið yfir alla lofgjörð og þökk.“
6
Þú ert Drottinn, þú einn. Þú hefur gert himininn, himin himinsins og allan hans her, jörðina og allt sem á henni er, höfin og allt sem í þeim er. Þú fyllir þau öll lífi og himinsins her sýnir þér lotningu.
7
Þú, Drottinn, ert Guð. Þú sem valdir Abram. Þú leiddir hann frá Úr í Kaldeu og gafst honum nafnið Abraham.
8
Þú reyndir hjarta hans að trúfesti við þig, þess vegna gerðir þú við hann þann sáttmála að gefa niðjum hans land Kanverja, Hetíta, Amoríta, Peresíta, Jebúsíta og Gírgasíta. Þú hefur efnt fyrirheit þitt því að þú ert réttlátur.
9
Þú sást eymd feðra vorra í Egyptalandi og heyrðir neyðaróp þeirra við Sefhafið.
10
Þú gerðir tákn og undur gegn faraó og öllum mönnum hans og allri þjóðinni í landi hans því að þú vissir að þeir hreyktu sér gegn Ísraelsmönnum og þú ávannst þér það nafn sem þú berð nú í dag.
11
Þú klaufst hafið fyrir framan þá svo að þeir gengu á þurru mitt í gegnum hafið en þeim sem eltu þá steyptir þú í djúpið eins og steini í ólgandi vatnsflaum.
12
Þú leiddir þá í skýstólpa um daga og í eldstólpa um nætur til þess að lýsa fyrir þá veginn sem þeir áttu að ganga.
13
Þú steigst niður á Sínaífjall og ávarpaðir þá frá himni. Þú gafst þeim skýr fyrirmæli og traust lög, góð boð og ákvæði,
14
boðaðir þeim hinn heilaga hvíldardag þinn og ákvæði, boð og lög fékkstu þeim fyrir munn Móse, þjóns þíns.
15
Þú gafst þeim brauð af himni til að seðja hungur þeirra, lést vatn streyma úr kletti til að slökkva þorsta þeirra. Þú skipaðir þeim að koma og taka það land til eignar sem þú hafðir svarið að gefa þeim með upplyftri hendi.
16
En þeir, feður vorir, fylltust hroka, urðu harðsvíraðir og hlýddu ekki boðum þínum.
17
Þeir vildu ekki hlýða og minntust ekki máttarverka þinna sem þú vannst fyrir þá. Þeir þverskölluðust og einsettu sér að halda aftur í þrælkunina í Egyptalandi. En þú ert Guð sem fyrirgefur, náðugur og miskunnsamur, seinn til reiði og gæskuríkur og þú yfirgafst þá ekki.
18
Þeir gerðu sér meira að segja steyptan kálf og sögðu: „Þetta er Guð þinn sem leiddi þig út úr Egyptalandi,“ og guðlöstuðu ákaflega.
19
En þrátt fyrir þetta yfirgafstu þá ekki í eyðimörkinni vegna þinnar miklu miskunnsemi: skýstólpinn vék ekki frá þeim heldur leiddi þá um daga og eldstólpinn um nætur til að lýsa þeim veginn sem þeir áttu að ganga.
20
Þú gafst þeim þinn góða anda til að auka þeim skilning. Þú lést þá ekki skorta manna og þú gafst þeim vatn til að slökkva þorstann.
21
Þú ólst önn fyrir þeim í fjörutíu ár, þá skorti ekkert í eyðimörkinni: klæði þeirra slitnuðu ekki og fætur þeirra þrútnuðu ekki.
22
Þú gafst þeim konungsríki og þjóðir og úthlutaðir þeim sem landamærahéruðum. Þannig tóku þeir land Síhons og land konungsins af Hesbon og land Ógs, konungs í Basan.
23
Þú gerðir niðja þeirra jafnmarga stjörnum himinsins og leiddir þá inn í landið sem þú hafðir heitið feðrum þeirra að þeir skyldu komast inn í og taka til eignar.
24
Niðjar þeirra komu og tóku landið til eignar og þú lagðir undir þá íbúa landsins, Kanverjana. Þú seldir þá í hendur þeirra ásamt konungum þeirra og öðrum íbúum landsins svo að þeir gætu farið með þá að vild.
25
Þeir unnu víggirtar borgir og frjósama akra, tóku til eignar vel búin hús, úthöggna brunna, víngarða og ólífutré og fjölmörg ávaxtatré. Þeir átu, urðu mettir og fitnuðu og lifðu í velsæld af þínum ríkulegu gjöfum.
26
En þeir þrjóskuðust og gerðu uppreisn gegn þér og sneru baki við lögmáli þínu. Þeir drápu spámenn þína sem áminntu þá og vildu leiða þá aftur til þín. Þá guðlöstuðu þeir mjög.
27
Þú seldir þá í hendur fjandmanna þeirra og þeir kúguðu þá. Í nauðum hrópuðu þeir til þín og þú bænheyrðir þá af himni. Þú sendir þeim frelsara af mikilli miskunn þinni og þeir björguðu þeim úr höndum kúgara þeirra.
28
Um leið og þeir fengu frið frömdu þeir aftur illvirki fyrir augliti þínu. Þú yfirgafst þá í greipum fjandmanna sinna og þeir kúguðu þá. Þá hrópuðu þeir aftur til þín og þú bænheyrðir þá af himni. Þú bjargaðir þeim margsinnis af miskunn þinni.
29
Þú áminntir þá um að snúa aftur til lögmáls þíns en þeir voru hrokafullir og hlýddu ekki boðum þínum. Þeir syndguðu gegn fyrirmælum þínum en hver sá hlýtur líf sem breytir eftir þeim. En þeir sneru baki við þér í þverúð og urðu harðsvíraðir og hlýddu ekki.
30
Þú sýndir þeim þolinmæði í mörg ár og varaðir þá við með anda þínum fyrir munn spámanna þinna en þeir hlustuðu ekki. Þá framseldir þú þá í hendur þjóðum í öðrum löndum.
31
En vegna þinnar miklu miskunnsemi tortímdir þú þeim ekki og þú yfirgafst þá ekki því að þú ert náðugur og miskunnsamur Guð.
32
Guð vor, þú mikli, voldugi og ógurlegi Guð. Þú sem heldur sáttmálann í trúfesti. Lítilsvirtu ekki allt það harðræði sem vér höfum þolað, konungar vorir og höfðingjar, prestar og spámenn, feður vorir og öll þjóð þín, frá dögum Assýríukonunga og allt til þessa dags.
33
Þú varst réttlátur í öllu sem yfir oss kom því að þú sýndir trúfesti þegar vér breyttum óguðlega.
34
Já, konungar vorir, höfðingjar, prestar og feður fóru ekki eftir lögmáli þínu. Þeir gáfu hvorki gaum boðum þínum né viðvörunum sem þú gafst þeim.
35
Þegar þeir bjuggu í eigin konungsríki, í velsæld sem þú veittir þeim, í víðu og frjósömu landi sem þú gafst þeim, þjónuðu þeir þér ekki og létu ekki af illum verkum sínum,
36
þess vegna erum vér þrælar nú í dag. Þú gafst feðrum vorum landið til þess að þeir nytu ávaxta þess og auðs, en vér erum þrælar í því.
37
Ríkulegir ávextir þess fara til konunga sem þú settir yfir oss vegna þess að vér syndguðum. Þeir drottna yfir líkömum vorum og fénaði að eigin geðþótta. Þess vegna þrengir að oss.
← Chapter 8
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 10 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13