bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Revelation 10
Revelation 10
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 9
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 11 →
1
Og ég sá annan sterkan engil stíga af himni ofan, hjúpaðan skýi. Regnboginn var yfir höfði honum og ásjóna hans var sem sólin og fætur hans sem eldstólpar.
2
Hann hélt á lítilli opinni bók í hendinni. Hægra fæti stóð hann á hafinu en vinstra fæti á jörðunni.
3
Hann kallaði hárri röddu eins og þegar ljón öskrar. Og er hann hafði kallað glumdi í þrumunum sjö.
4
Þegar ég ætlaði að fara að skrifa það sem þrumurnar sögðu heyrði ég rödd af himni sem sagði: „Geymdu með sjálfum þér það sem þrumurnar sjö töluðu og rita það ekki.“
5
Og engillinn, sem ég sá standa á hafinu og á jörðunni, hóf upp hægri hönd sína til himins
6
og sór við þann sem lifir um aldir alda, hann sem skóp himininn og það sem í honum er, jörðina og það sem á henni er og hafið og það sem í því er, og sagði: Lengri frestur verður ekki gefinn.
7
En þegar kemur að því að sjöundi engillinn fer að básúna hefur Guð látið rætast sitt leynda ráð sem hann hafði boðað þjónum sínum, spámönnunum.
8
Röddin, sem ég heyrði af himni, talaði þá aftur til mín og sagði: „Far og tak opnu bókina úr hendi engilsins sem stendur á hafinu og á jörðunni.“
9
Ég fór til engilsins og bað hann að fá mér litlu bókina. Og hann segir við mig: „Tak hana og et. Hún verður beisk í maga þínum en í munni þínum mun hún sæt sem hunang.“
10
Ég tók litlu bókina úr hendi engilsins, át hana og í munni mér var hún sæt sem hunang. En er ég hafði etið hana fann ég til beiskju í maga mínum.
11
Þá var sagt við mig: „Enn átt þú að flytja spámannlegan boðskap gegn mörgum lýðum og þjóðum, tungum og konungum.“
← Chapter 9
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 11 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22