bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Revelation 5
Revelation 5
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 4
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 6 →
1
Í hægri hendi hans, er í hásætinu sat, sá ég bók sem ritað var á báðum megin og innsiglaða sjö innsiglum.
2
Og ég sá sterkan engil sem kallaði hárri röddu: „Hver er þess verður að ljúka upp bókinni og rjúfa innsigli hennar?“
3
En enginn var sá á himni eða jörðu eða undir jörðunni sem lokið gæti upp bókinni og litið í hana.
4
Og ég grét stórum af því að enginn reyndist maklegur að ljúka henni upp og líta í hana.
5
En einn af öldungunum segir við mig: „Grát þú eigi! Sjá, sigrað hefur ljónið af Júda ættkvísl, rótarkvistur Davíðs. Hann getur lokið upp bókinni og rofið innsigli hennar sjö.“
6
Þá sá ég lamb, sem virtist hafa verið slátrað, standa fyrir miðju hásætinu milli veranna fjögurra og öldunganna. Það hafði sjö horn og sjö augu, og eru það sjö andar Guðs sem eru sendir út um alla jörðina.
7
Lambið kom og tók við bókinni úr hægri hendi hans er í hásætinu sat.
8
Þegar það hafði tekið við henni féllu verurnar fjórar og öldungarnir tuttugu og fjórir niður frammi fyrir lambinu. Þeir höfðu hver um sig hörpu og héldu á gullskálum fullum af reykelsi. Það eru bænir hinna heilögu.
9
Og þeir sungu nýjan söng: Verður ert þú að taka við bókinni og rjúfa innsigli hennar því að þér var slátrað og með blóði þínu keyptir þú Guði til handa menn af sérhverri kynkvísl og tungu, lýð og þjóð.
10
Og þú gerðir þá að konungum og prestum Guði vorum til handa. Og þeir munu ríkja á jörðunni.
11
Þá sá ég og heyrði raust margra engla sem stóðu hringinn í kringum hásætið og verurnar og öldungana og tala þeirra var tíu þúsundir tíu þúsunda og þúsundir þúsunda.
12
Þeir sögðu með hárri röddu: Maklegt er lambið slátraða að fá máttinn og ríkdóminn, visku og kraft, heiður og dýrð og lofgjörð.
13
Þá heyrði ég að allt sem skapað er á himni og jörðu, undir jörðunni og á hafinu, og allt sem í þeim er, tók undir og sagði: Honum, sem í hásætinu situr, og lambinu, sé lof og heiður, dýrð og kraftur um aldir alda.
14
Og verurnar fjórar sögðu: „Amen.“ Og öldungarnir féllu fram og tilbáðu.
← Chapter 4
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 6 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22