bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
/
Proverbs 13
Proverbs 13
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
← Chapter 12
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 14 →
1
Vitur sonur hlýðir umvöndun föður síns, en spottarinn sinnir engum átölum.
2
Maðurinn nýtur góðs af ávexti munnsins, en svikarana þyrstir í ofbeldi.
3
Sá sem gætir munns síns, varðveitir líf sitt, en glötun er búin þeim, er ginið glennir.
4
Sál letingjans girnist og fær ekki, en sál hinna iðnu mettast ríkulega.
5
Réttlátur maður hatar fals, en hinn óguðlegi fremur skömm og svívirðu.
6
Réttlætið verndar grandvara breytni, en guðleysið steypir syndaranum.
7
Einn þykist ríkur, en á þó ekkert, annar læst vera fátækur, en á þó mikinn auð.
8
Auðæfi mannsins eru lausnargjald fyrir líf hans, en hinn fátæki hlýðir ekki á neinar ávítur.
9
Ljós réttlátra logar skært, en á lampa óguðlegra slokknar.
10
Með hroka vekja menn aðeins þrætur, en hjá ráðþægnum mönnum er viska.
11
Skjótfenginn auður minnkar, en sá sem safnar smátt og smátt, verður ríkur.
12
Langdregin eftirvænting gjörir hjartað sjúkt, en uppfyllt ósk er lífstré.
13
Sá sem fyrirlítur áminningarorð, býr sér glötun, en sá sem óttast boðorðið, hlýtur umbun.
14
Kenning hins vitra er lífslind til þess að forðast snöru dauðans.
15
Góðir vitsmunir veita hylli, en vegur svikaranna leiðir í glötun.
16
Kænn maður gjörir allt með skynsemd, en heimskinginn breiðir út vitleysu.
17
Óguðlegur sendiboði steypir í ógæfu, en trúr sendimaður er meinabót.
18
Fátækt og smán hlýtur sá, er lætur áminning sem vind um eyrun þjóta, en sá sem tekur umvöndun, verður heiðraður.
19
Uppfyllt ósk er sálunni sæt, en að forðast illt er heimskingjunum andstyggð.
20
Haf umgengni við vitra menn, þá verður þú vitur, en illa fer þeim, sem leggur lag sitt við heimskingja.
21
Óhamingjan eltir syndarana, en gæfan nær hinum réttlátu.
22
Góður maður lætur eftir sig arf handa barnabörnunum, en eigur syndarans eru geymdar hinum réttláta.
23
Nýbrotið land fátæklinganna gefur mikla fæðu, en mörgum er burtu kippt fyrir ranglæti sitt.
24
Sá sem sparar vöndinn, hatar son sinn, en sá sem elskar hann, agar hann snemma.
25
Hinn réttláti etur nægju sína, en kviður óguðlegra líður skort.
← Chapter 12
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 14 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31