bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
/
Proverbs 21
Proverbs 21
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
← Chapter 20
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 22 →
1
Hjarta konungsins er eins og vatnslækir í hendi Drottins, hann beygir það til hvers, er honum þóknast.
2
Manninum þykja allir sínir vegir réttir, en Drottinn vegur hjörtun.
3
Að iðka réttlæti og rétt er Drottni þóknanlegra en sláturfórn.
4
Drembileg augu og hrokafullt hjarta eru lampi óguðlegra, - allt er það synd.
5
Fyrirætlanir iðjumannsins reynast fésamar vel, en öll flasfærni lendir í fjárskorti.
6
Fjársjóðir, sem aflað er með lygatungu, eru sem þjótandi vindblær, snörur dauðans.
7
Ofríki hinna óguðlegu dregur þá á eftir sér, því að þeir færast undan að gjöra það, sem rétt er.
8
Boginn er vegur þess manns, sem synd er hlaðinn, en verk hins hreina eru ráðvandleg.
9
Betri er vist í horni á húsþaki en sambúð við þrasgjarna konu.
10
Sál hins óguðlega girnist illt, náungi hans finnur enga miskunn hjá honum.
11
Sé spottaranum refsað, verður hinn einfaldi hygginn, og sé vitur maður fræddur, lærir hann hyggindi.
12
Gætur gefur réttlátur að húsi hins óguðlega, steypir óguðlegum í ógæfu.
13
Sá sem byrgir eyrun fyrir kveini hins fátæka, hann mun sjálfur kalla og eigi fá bænheyrslu.
14
Gjöf á laun sefar reiði og múta í barmi ákafa heift.
15
Réttlátum manni er gleði að gjöra það, sem rétt er, en illgjörðamönnum er það skelfing.
16
Sá maður, sem villist af vegi skynseminnar, mun brátt hvílast í söfnuði framliðinna.
17
Öreigi verður sá, er sólginn er í skemmtanir, sá sem sólginn er í vín og olíu, verður ekki ríkur.
18
Hinn óguðlegi er lausnargjald fyrir hinn réttláta, og svikarinn kemur í stað hinna hreinskilnu.
19
Betra er að búa í eyðimerkur-landi en með þrasgjarnri og geðillri konu.
20
Dýrmætur fjársjóður og olía er í heimkynnum hins vitra, en heimskur maður sólundar því.
21
Sá sem ástundar réttlæti og kærleika, hann öðlast líf, réttlæti og heiður.
22
Vitur maður vinnur borg kappanna og rífur niður vígið, sem hún treysti á.
23
Sá sem varðveitir munn sinn og tungu, hann varðveitir sálu sína frá nauðum.
24
Sá sem er hrokafullur, dramblátur, hann heitir spottari, sá sem gjörir allt af taumlausum hroka.
25
Óskir letingjans drepa hann, því að hendur hans vilja ekki vinna.
26
Ávallt er letinginn að óska sér, en hinn réttláti gefur og er ekki naumur.
27
Sláturfórn óguðlegra er Drottni andstyggð, hvað þá, sé hún framborin fyrir óhæfuverk.
28
Falsvottur mun tortímast, en maður, sem heyrt hefir, má ávallt tala.
29
Óguðlegur maður setur upp öruggan svip, en hinn hreinskilni gjörir veg sinn öruggan.
30
Engin viska er til og engin hyggni, né heldur ráð gegn Drottni.
31
Hesturinn er hafður viðbúinn til orustudagsins, en sigurinn er í hendi Drottins.
← Chapter 20
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 22 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31