bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
/
Proverbs 16
Proverbs 16
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
← Chapter 15
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 17 →
1
Fyrirætlanir hjartans eru á mannsins valdi, en svar tungunnar kemur frá Drottni.
2
Manninum þykja allir sínir vegir hreinir, en Drottinn prófar hugarþelið.
3
Fel þú Drottni verk þín, þá mun áformum þínum framgengt verða.
4
Allt hefir Drottinn skapað til síns ákveðna marks, svo og guðleysingjann til óheilladagsins.
5
Sérhver hrokafullur maður er Drottni andstyggð, hér er höndin upp á það: hann sleppur ekki óhegndur!
6
Með elsku og trúfesti er friðþægt fyrir misgjörð, og fyrir ótta Drottins forðast menn hið illa.
7
Þegar Drottinn hefir þóknun á breytni einhvers manns, þá sættir hann og óvini hans við hann.
8
Betra er lítið með réttu en miklar tekjur með röngu.
9
Hjarta mannsins upphugsar veg hans, en Drottinn stýrir gangi hans.
10
Goðsvar er á vörum konungsins, í dómi mun munni hans ekki skeika.
11
Rétt vog og reisla koma frá Drottni, lóðin á vogarskálunum eru hans verk.
12
Að fremja ranglæti er konungum andstyggð, því að hásætið staðfestist fyrir réttlæti.
13
Réttlátar varir eru yndi konunga, og þeir elska þann, er talar hreinskilni.
14
Konungsreiði er sem sendiboði dauðans, en vitur maður sefar hana.
15
Í mildilegu augnaráði konungs er líf, og hylli hans er sem vorregns-ský.
16
Hversu miklu betra er að afla sér visku en gulls og ákjósanlegra að afla sér hygginda en silfurs.
17
Braut hreinskilinna er að forðast illt, að varðveita sálu sína er að gæta breytni sinnar.
18
Drambsemi er undanfari tortímingar, og oflæti veit á fall.
19
Betra er að vera lítillátur með auðmjúkum en að skipta herfangi með dramblátum.
20
Sá sem gefur gætur að orðinu, hreppir hamingju, og sæll er sá, sem treystir Drottni.
21
Sá sem er vitur í hjarta, verður hygginn kallaður, og sætleiki varanna eykur fræðslu.
22
Lífslind er hyggnin þeim, sem hana á, en ögun afglapanna er þeirra eigin flónska.
23
Hjarta spekingsins gjörir munn hans hygginn og eykur fræðsluna á vörum hans.
24
Vingjarnleg orð eru hunangsseimur, sæt fyrir sálina, lækning fyrir beinin.
25
Margur vegurinn virðist greiðfær, en endar þó á helslóðum.
26
Hungur erfiðismannsins erfiðar með honum, því að munnur hans rekur á eftir honum.
27
Varmennið grefur óheillagröf, og á vörum hans er sem brennandi eldur.
28
Vélráður maður kveikir illdeilur, og rógberinn veldur vinaskilnaði.
29
Ofbeldismaðurinn ginnir náunga sinn og leiðir hann á vondan veg.
30
Sá sem lokar augunum, upphugsar vélræði, sá sem kreistir saman varirnar, er albúinn til ills.
31
Gráar hærur eru heiðurskóróna, á vegi réttlætis öðlast menn hana.
32
Sá sem seinn er til reiði, er betri en kappi, og sá sem stjórnar geði sínu, er meiri en sá sem vinnur borgir.
33
Í skikkjufellingum eru teningarnir hristir, en Drottinn ræður, hvað upp kemur.
← Chapter 15
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 17 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31