bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Ecclesiastes 10
Ecclesiastes 10
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 9
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 11 →
1
Dauðar flugur valda ódaun með því að hleypa gerjun í olíu smyrslarans. Ofurlítill aulaskapur er þyngri á metunum en viska eða sómi.
2
Hjarta viturs manns stefnir á heillabraut en hjarta heimskingjans leiðir hann í ógæfu.
3
Aulinn gengur veg sinn og brestur vitið og segir við hvern mann að hann sé auli.
4
Ef reiði drottnarans kviknar gegn þér, vertu þá staðfastur því að stilling afstýrir miklum glappaskotum.
5
Til er böl sem ég hef séð undir sólinni, yfirsjón af hálfu valdhafans:
6
Heimskan er sett í háu stöðurnar en göfugmennin sitja í niðurlægingu.
7
Ég sá þræla sitja hesta og höfðingja fótgangandi eins og þræla.
8
Sá sem grefur gröf fellur í hana og þann sem rífur niður vegg getur höggormur bitið.
9
Sá sem sprengir steina getur meitt sig á þeim, sá sem klýfur við getur stofnað sér í hættu.
10
Sé öxin orðin sljó og eggin ekki brýnd, þá verður maðurinn að neyta því meiri orku. Það er ávinningur að undirbúa allt með hagsýni.
11
Ef höggormurinn bítur af því að særingar hafa verið vanræktar, þá kemur særingamaðurinn að engu liði.
12
Orð af munni viturs manns eru yndisleg en varir heimskingjans vinna honum tjón.
13
Fyrstu orðin út úr honum eru heimska og endir ræðu hans er ill flónska.
14
Heimskinginn mælir mörg orð, þó veit maðurinn ekki hvað verða muni. Hvað verða muni eftir hans dag, hver segir honum það?
15
Amstur heimskingjans þreytir hann, hann ratar ekki veginn inn í borgina.
16
Vei þér, land, sem hefur dreng að konungi og höfðingjar þínir setjast að veislu að morgni dags!
17
Sælt ert þú, land, sem hefur eðalborinn mann að konungi og höfðingjar þínir matast á réttum tíma sér til styrkingar en ekki til þess að verða drukknir.
18
Vegna leti síga bjálkarnir niður og vegna iðjulausra handa lekur húsið.
19
Til gleðskapar búa menn máltíðir, vín gerir lífið skemmtilegt og peningarnir veita allt.
20
Formæltu ekki konunginum, jafnvel ekki í huga þínum, og formæltu ekki ríkum manni í svefnherbergjum þínum því að fuglar loftsins kynnu að bera burt hljóminn og hinir vængjuðu að hafa orðin eftir.
← Chapter 9
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 11 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
Recommended Reading
Commentary
Ecclesiastes Commentaries
→
Devotional
Ecclesiastes Devotional Guide
→
Get This Bible
2007 Study Bible
→