bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Ecclesiastes 12
Ecclesiastes 12
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 11
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
1
Mundu eftir skapara þínum á unglingsárum þínum, áður en vondu dagarnir koma og þau árin nálgast er þú segir um: „Mér líka þau ekki,“
2
áður en sólin myrkvast og ljósið og tunglið og stjörnurnar, áður en skýin koma aftur eftir regnið,
3
þá er þeir skjálfa sem hússins gæta og sterku mennirnir verða bognir og kvarnarstúlkurnar hafast ekki að því að þær eru orðnar fáar og dimmt er orðið hjá þeim sem líta út um gluggana
4
og dyrunum út að götunni er lokað og hávaðinn í kvörninni minnkar og menn vakna við fuglskvak en allir söngvarnir verða lágværir,
5
þegar menn eru hræddir við hæðir og sjá skelfingar á veginum, þegar möndlutréð stendur í blóma og engispretturnar dragast áfram og kapersber hrífa ekki lengur en maðurinn fer burt til síns eilífðarhúss og grátendurnir ganga um strætið,
6
áður en silfurþráðurinn slitnar og gullskálin brotnar og skjólan mölvast við lindina og hjólið brotnar við brunninn
7
og moldin hverfur aftur til jarðarinnar, þar sem hún áður var, og andinn til Guðs sem gaf hann.
8
Aumasti hégómi, segir prédikarinn, allt er hégómi.
9
En prédikarinn var spekingur og miðlaði mönnum einnig þekkingu og rannsakaði og kynnti sér og samdi mörg spakmæli.
10
Prédikarinn leitaðist við að finna fögur orð og það sem hann hefur skrifað í einlægni eru sannleiksorð.
11
Orð spekinganna eru hvöss sem broddar og kjarnyrðin eins og fastreknir naglar; þau eru gefin af einum hirði.
12
Sonur minn, þýðstu viðvaranir. Að taka saman margar bækur, á því er enginn endir og mikill lestur þreytir líkamann.
13
Við skulum hlýða á niðurstöðu þessa alls: Óttastu Guð og haltu boðorð hans því að það á hver maður að gera.
14
Guð mun leiða sérhvert verk fyrir dóm sem haldinn verður yfir öllu því sem hulið er, hvort sem það er gott eða illt.
← Chapter 11
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
Recommended Reading
Commentary
Ecclesiastes Commentaries
→
Devotional
Ecclesiastes Devotional Guide
→
Get This Bible
2007 Study Bible
→