bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Ecclesiastes 9
Ecclesiastes 9
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 8
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 10 →
1
Öllu þessu veitti ég athygli og allt þetta reyndi ég að rannsaka: Hinir réttlátu og vitru og verk þeirra eru í hendi Guðs. Hvorki ást né hatur veit maðurinn fyrir, allt bíður síns tíma,
2
hið sama hendir alla, sömu örlög mæta réttlátum og óguðlegum, góðum og illum, hreinum og óhreinum, þeim sem fórnfærir og þeim sem ekki fórnfærir. Hinum góða farnast eins og syndaranum, og þeim er sver eins og þeim er óttast svardaga.
3
Það er ókostur við allt sem við ber undir sólinni að sömu örlög mæta öllum og því fyllist hjarta mannanna illsku og heimska ríkir í hjörtum þeirra alla ævi þeirra og síðan liggur leiðin til hinna dauðu.
4
Meðan maður er sameinaður þeim sem lifa, svo lengi er von, því að lifandi hundur er betri en dautt ljón.
5
Þeir sem lifa vita að þeir eiga að deyja en hinir dauðu vita ekki neitt og hljóta engin laun framar og minning þeirra gleymist.
6
Bæði ást þeirra, hatur og öfund, það er fyrir löngu farið og þeir eiga ekki framar hlutdeild í neinu sem við ber undir sólinni.
7
Farðu því og et brauð þitt með ánægju og drekktu vín þitt með glöðu hjarta því að Guð hefur lengi haft velþóknun á verkum þínum.
8
Klæði þín séu ætíð hvít og höfuð þitt skorti aldrei ilmsmyrslin.
9
Njóttu lífsins með konunni, sem þú elskar, alla daga þíns fánýta lífs, sem hann hefur gefið þér undir sólinni, alla þína fánýtu daga því að það er hlutdeild þín í lífinu og það sem þú færð fyrir strit þitt sem þú streitist við undir sólinni.
10
Allt sem hönd þín megnar að gera með kröftum þínum, gerðu það, því að í dánarheimum, þangað sem þú ferð, er hvorki starfsemi né hyggindi né þekking né viska.
11
Enn sá ég undir sólinni að hinir fótfráu ráða ekki hlaupinu, né hetjurnar stríðinu, né eiga spekingarnir brauðið víst, né hinir hyggnu auðinn, né hinir vitru vinsældir því að tími og tilviljun hittir þá alla fyrir.
12
Maðurinn þekkir ekki einu sinni sinn tíma. Eins og fiskarnir festast í hinu háskalega neti og eins og fuglarnir festast í snörunni, á líkan hátt verða mennirnir fangnir á óheillatíð þegar hún kemur skyndilega yfir þá.
13
Þetta virtist mér einnig speki undir sólinni og fannst mér mikið um:
14
Einu sinni var lítil borg og fáir menn í henni. Voldugur konungur fór gegn henni, settist um hana og reisti mikil hervirki við hana.
15
En í borginni var fátækur maður en vitur og hann bjargaði borginni með visku sinni. En enginn minntist þessa fátæka manns.
16
Þá hugsaði ég: Viska er betri en afl en viska fátæks manns er fyrirlitin og orðum hans er enginn gaumur gefinn.
17
Orð viturra manna, sem hlustað er á í næði, eru betri en óp valdhafans meðal heimskingjanna.
18
Viska er betri en hervopn en einn syndari spillir mörgu góðu.
← Chapter 8
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 10 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
Recommended Reading
Commentary
Ecclesiastes Commentaries
→
Devotional
Ecclesiastes Devotional Guide
→
Get This Bible
2007 Study Bible
→