bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Habakkuk 1
Habakkuk 1
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 2 →
1
Spádómur sem vitraðist Habakkuk spámanni.
2
Hve lengi á ég að hrópa, Drottinn, án þess að þú hlustir? Um ofbeldi hef ég hrópað til þín án þess að þú kæmir til hjálpar.
3
Hví sýnirðu mér illskuna og horfir aðgerðalaus á ranglætið? Hví eru fyrir augum mér ofbeldi og rán sem vekja ágreining og kveikja illdeilur?
4
Vegna þessa sljóvgast réttvísin og réttlætið sigrar ekki, illmennið situr um hinn réttláta, og því er rétturinn afskræmdur.
5
Skyggnist um meðal þjóðanna, hyggið að og undrist stórum. Slík verk eru unnin nú á yðar dögum að þér tryðuð ekki þótt tjáð væri.
6
Nú magna ég upp Kaldea, þá bráðu og grimmlyndu þjóð, sem leggur leið sína um heiminn þveran og tekur sér lönd sem ekki eru hennar.
7
Ógurlegir og skelfilegir eru þeir; þeir virða þau lög og reglur einar sem geðþóttinn býður.
8
Fljótari en hlébarðar eru hestar þeirra, frárri á fæti en úlfar óbyggðanna. Gæðingar þeirra þjóta að úr fjarska sem á vængjum bornir, eins og gammar steypa sér yfir bráð.
9
Erindi þeirra er ofbeldið eitt, svipur þeirra hvass sem austanvindurinn, þeir sópa saman stríðsföngum eins og sandi.
10
Konunga hæða þeir og gera gys að höfðingjum, þeir skopast að varnarvirkjunum, hrúga að þeim mold og vinna þau.
11
Þeim vex ásmegin en brotlegir gerast þeir og sekir, þeir sem hafa gert sér völdin að guði.
12
Ert þú, Drottinn, ekki Guð minn frá öndverðu, minn Heilagi, sem aldrei deyr? Drottinn, þú hefur sett þá undir dóm. Þú, bjarg mitt, þú hefur ætlað þeim refsingu.
13
Of hrein eru augu þín til að líta hið illa og þér er um megn að horfa á illvirki. Hví horfirðu þá aðgerðalaus á illvirki þeirra meðan hinn rangláti svelgir í sig þann sem honum er réttlátari?
14
Nú hefurðu gert menn eins og fiska sjávarins, eins og skriðdýrin sem eiga sér engan leiðtoga.
15
Þeir draga þá alla upp á öngli, veiða þá í vörpu sína og safna þeim í net sitt. Yfir því gleðjast þeir og fagna.
16
Þess vegna færa þeir vörpu sinni sláturfórnir og netum sínum brennifórnir. Þeim þakka þeir vænan afla og ríkulegar vistir.
17
Munu þeir þá tæma net sín enn á ný og ekki skirrast við að drepa þjóðir án vægðar?
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 2 →
All chapters:
1
2
3