bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Habakkuk 2
Habakkuk 2
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 1
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 3 →
1
En ég held varðstöðu minni og dvelst í varðturninum, bíð átekta uns ég sé hvað hann boðar mér og hvernig hann svarar umkvörtunum mínum.
2
Drottinn svaraði mér og sagði: Skrá þú þessa vitrun. Skrá hana á töflur svo skýrt að hana megi lesa á hlaupum
3
því að spáð er fyrir um ákveðinn tíma, traustur vitnisburður gefinn um ókomna tíð. Þótt töf verði á skaltu bíða engu að síður því að þetta rætist vissulega og án tafar.
4
Hugur hans hefur reigt sig um of og horfið af réttri braut, en hinn réttláti mun lifa fyrir trú sína.
5
Hins vegar verður hinum guðlausa hrokagikk refsað, sem hefur þanið svelg sinn sem heljardjúpin, er óseðjandi eins og sjálfur dauðinn, hefur sópað að sér öllum lýðum og safnað undir sig öllum þjóðum.
6
Sannarlega munu þær allar hafa hann að háði og spotti í hálfkveðnum vísum. Þær munu segja: Vei þeim sem rakar að sér eigum annarra. Hve miklu lengur verður svo? Æ þyngri verður skuldabyrði hans.
7
Óvænt munu lánardrottnar þínir vitja þín. Og þeir sem innheimta hrella þig og svipta þig öllum eigum.
8
Sjálfur hefurðu rænt margar þjóðir. Þær sem eftir verða taka eigur þínar herfangi fyrir manndrápin og ofbeldið sem landið sætti, borgin og allir íbúar hennar.
9
Vei þeim sem aflar húsi sínu illfengins gróða svo að hann geti hreykt sér í hreiðri sínu og gengið hinu illa úr greipum.
10
Smán hefurðu bakað húsi þínu með eyðingu margra þjóða, og fyrirgert lífi þínu.
11
Steinninn mun þá hrópa úr múrveggnum og tréð í burðarásunum taka undir.
12
Vei þeim sem reisir borg á manndrápum og stofnar byggð með rangindum.
13
Er það ekki Drottinn allsherjar sem veldur því að strit lýðsins fuðrar upp í eldi og þjóðirnar erfiða til einskis?
14
En heimsbyggðin mun mettast af þekkingu á dýrð Drottins eins og vatnið fyllir höfin.
15
Vei þér sem gerir aðra ofurölvi og blandar heift þinni í drykkinn til þess að sjá nekt þeirra.
16
Smánin mun metta þig, ekki sæmdin. Sjálfur skaltu drekka og verða reikull á fótum. Bikarinn í hægri hendi Drottins kemur einnig til þín og spýjan yfir vegsemd þína.
17
Ódæðin gegn Líbanonsfjalli munu koma yfir þig og dráp búsmalans reynast þér dýrkeypt vegna mannvíganna og ofbeldisins sem landið sætti, borgin og allir íbúar hennar.
18
Hvað hefur skurðgoð gagnað? Það er maður sem hefur skorið það út. Hvaða gagn er að steyptu líkneski, lygafræðara? Hvernig getur smiðurinn treyst á mállaust goðið sem hann hefur mótað?
19
Vei þér sem segir „vaknaðu“ við tré eða „rístu upp“ við lífvana stein. Veitir hann fræðslu? Vissulega er hann prýddur gulli og silfri en andinn er enginn.
20
En Drottinn er í sínu heilaga musteri. Öll jörðin veri hljóð frammi fyrir honum.
← Chapter 1
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 3 →
All chapters:
1
2
3