bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Judges 10
Judges 10
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 9
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 11 →
1
Eftir Abímelek reis upp Tóla Púason, Dódósonar, maður af Íssakar, til að frelsa Ísrael. Hann bjó í Samír á Efraímsfjöllum
2
og var dómari í Ísrael í tuttugu og þrjú ár. Síðan andaðist hann og var grafinn í Samír.
3
Eftir hann reis upp Jaír frá Gíleað og var dómari í Ísrael í tuttugu og tvö ár.
4
Hann átti þrjátíu syni sem riðu á þrjátíu ösnufolum og áttu þrjátíu þorp. Eru þau kölluð Jaírsþorp allt fram á þennan dag. Þau eru í Gíleaðlandi.
5
Síðan andaðist Jaír og var grafinn í Kamón.
6
Ísraelsmenn gerðu enn að nýju það sem illt var í augum Drottins og dýrkuðu Baala og Astörtur, guði Arams, guði Sídonar, guði Móabs, guði Ammóníta og guði Filistea og yfirgáfu Drottin og dýrkuðu hann ekki.
7
Þá upptendraðist reiði Drottins gegn Ísrael og hann seldi þá í hendur Filisteum og í hendur Ammónítum.
8
Þeir þjáðu og þjökuðu Ísraelsmenn það ár. Í átján ár þjökuðu þeir alla Ísraelsmenn sem bjuggu í Gíleað hinum megin Jórdanar í landi Amoríta.
9
Enn fremur fóru Ammónítar yfir Jórdan til þess að herja á Júda, Benjamín og ætt Efraíms svo að Ísrael lenti í miklum þrengingum.
10
Þá hrópuðu Ísraelsmenn til Drottins og sögðu: „Við höfum syndgað gegn þér því að við höfum yfirgefið Guð okkar og dýrkað Baala.“
11
En Drottinn sagði við Ísraelsmenn: „Hafa ekki Egyptar, Amorítar, Ammónítar, Filistear,
12
Sídoningar, Amalekítar og Midíanítar kúgað ykkur? Þá hrópuðuð þið til mín og ég frelsaði ykkur úr höndum þeirra.
13
En þið hafið yfirgefið mig og dýrkað aðra guði. Þess vegna vil ég ekki hjálpa ykkur framar.
14
Farið og hrópið til guða þeirra sem þið hafið valið ykkur. Hjálpi þeir ykkur þegar þið eruð í nauðum.“
15
Þá sögðu Ísraelsmenn við Drottin: „Við höfum syndgað. Gerðu við okkur það sem þér líkar en frelsaðu okkur í dag.“
16
Síðan köstuðu þeir frá sér útlendu guðunum og dýrkuðu Drottin. Gat hann þá ekki unað hremmingum Ísraels.
17
Þá var Ammónítum stefnt saman og settu þeir herbúðir sínar í Gíleað. En Ísraelsmenn söfnuðust saman og settu herbúðir sínar í Mispa.
18
Herliðið, höfðingjarnir í Gíleað, sögðu hver við annan: „Hver er sá maður sem fyrstur vill hefja ófrið við Ammóníta? Hann skal vera höfðingi yfir öllum íbúum Gíleaðs.“
← Chapter 9
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 11 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21