bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Judges 5
Judges 5
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 4
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 6 →
1
Á þeim degi sungu þau Debóra og Barak Abínóamsson á þessa leið:
2
Lýðnum hlotnaðist frelsi í Ísrael og fólkið kom af frjálsum vilja, lofið því Drottin.
3
Heyrið, þér konungar, hlustið á, þér höfðingjar. Drottin vil ég vegsama, ég vil lofa hann, lofsyngja Drottni, Guði Ísraels.
4
Drottinn, þegar þú braust út frá Seír, þegar þú brunaðir fram frá Edómsvöllum, skalf jörðin, himinninn nötraði og skýin létu vatnið streyma.
5
Fjöllin bifuðust frammi fyrir Drottni, sjálft Sínaí, frammi fyrir Drottni, Guði Ísraels.
6
Á dögum Samgars Anatssonar, á dögum Jaelar, voru þjóðbrautir mannlausar og vegfarendur fóru leynistigu.
7
Leiðtogar höfðust ekkert að í Ísrael uns þú komst fram, Debóra, uns þú komst fram, móðir í Ísrael.
8
Menn kusu sér nýja guði. Þá var barist við borgarhliðin. Skjöldur sást hvorki né spjót meðal fjörutíu þúsunda í Ísrael.
9
Hjarta mitt heyrir til leiðtogum Ísraels sem komu fram af frjálsum vilja meðal fólksins. Lofið Drottin.
10
Þér sem ríðið hvítum ösnum, þér sem hvílið á ábreiðum og þér sem farið um veginn, hugsið um það.
11
Með meiri háreysti en vatnsberarnir við vatnsþrærnar skulu menn víðfrægja réttlætisverk Drottins, réttlætisverk stjórnar hans í Ísrael. Þá fór lýður Drottins niður að borgarhliðunum.
12
Vakna, vakna, Debóra, vakna, vakna, syngdu söng. Af stað, Barak, leið burt bandingja þína, sonur Abínóams.
13
Þá fóru ofan þeir sem eftir voru af göfugmennunum, lýður Drottins steig ofan mér til hjálpar meðal hetjanna.
14
Frá Efraím fóru þeir ofan í dalinn og hrópuðu: „Vér fylgjum þér, Benjamín, og liði þínu.“ Ofan frá Makír fóru leiðtogar og frá Sebúlon þeir sem bera stjórnsprotann,
15
leiðtogarnir í Íssakar með Debóru, og Íssakar var með Barak, hann fór á eftir honum niður í dalinn. Flokkar Rúbens sýndu mikla hugprýði.
16
Hví sast þú milli fjárkvíanna og hlustaðir á flautuleik smalanna? Flokkar Rúbens sýndu mikla hugprýði.
17
Gíleað hélt kyrru fyrir hinum megin Jórdanar og hvers vegna dvaldist Dan við skipin? Asser sat við sjávarströndina og hélt kyrru fyrir við víkur sínar.
18
Sebúlon er þjóð sem hætti lífi sínu og eins Naftalí á hæðum landsins.
19
Konungar komu og börðust, þá börðust konungar Kanaans við Taanak hjá Megiddóvötnum. Silfur tóku þeir ekkert að herfangi.
20
Af himni börðust stjörnurnar, af brautum sínum börðust þær við Sísera,
21
Kísonlækur skolaði þeim burt, lækurinn forni, lækurinn Kíson. Gakktu fram, sál mín, kröftuglega.
22
Þá glumdu hófar hestanna af reiðinni, reið kappanna.
23
„Bölvið Merós,“ sagði engill Drottins, já, bölvið íbúum hennar af því að þeir komu ekki Drottni til hjálpar, Drottni til hjálpar meðal hetjanna.
24
Blessuð framar öllum konum veri Jael, kona Hebers Keníta, blessuð framar öllum konum í tjaldi.
25
Vatn bað hann um, mjólk gaf hún, rétti honum rjóma í skrautlegri skál.
26
Hún rétti út hönd sína eftir tjaldhælnum, hægri hönd sína eftir hamrinum og sló Sísera, mölvaði höfuð hans, hjó í gagnauga hans og klauf inn úr.
27
Hann hné niður fyrir fætur henni, féll út af og lá þar. Hann hné niður fyrir fætur henni, leið út af og þar sem hann hné niður lá hann lífvana.
28
Út um gluggann skimar móðir Sísera, kallar út um grindurnar: „Hvað dvelur vagn hans? Hvað tefur ferð hervagna hans?“
29
Hinar vitrustu af hefðarfrúm hennar svara og hún endurtekur svör þeirra:
30
„Sjálfsagt hafa þeir tekið herfang og eru að skipta því, ein kona eða tvær á mann, litklæði handa Sísera að herfangi, glitofin litklæði að herfangi, litklæði og tvo glitofna dúka um háls sigurvegarans.“
31
Svo farist allir óvinir þínir, Drottinn. En megi þeir sem þig elska ljóma sem sólarupprás. Var nú friður í landi í fjörutíu ár.
← Chapter 4
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 6 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
Recommended Reading
Commentary
Judges Commentaries
→
Devotional
Judges Devotional Guide
→
Get This Bible
2007 Study Bible
→