bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Judges 12
Judges 12
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 11
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 13 →
1
Efraímítum var stefnt saman. Þeir héldu í norður og sögðu við Jefta: „Hví fórst þú að berjast við Ammóníta og kallaðir okkur ekki til liðs við þig? Nú munum við leggja eld í hús þitt.“
2
Þá sagði Jefta við þá: „Ég og þjóð mín áttum í miklum deilum við Ammóníta. Beiddist ég þá liðs af ykkur en þið hjálpuðuð mér ekki úr höndum þeirra.
3
Þegar ég sá að þið ætluðuð ekki að hjálpa mér þá hætti ég lífi mínu og hélt gegn Ammónítum og Drottinn gaf þá mér í hendur. Hvers vegna komið þið þá til mín í dag til þess að berjast við mig?“
4
Jefta safnaði saman öllum mönnum í Gíleað og barðist við Efraímíta og unnu íbúar Gíleaðs sigur á Efraímítum. Efraímítar höfðu sagt: „Þið eruð flóttamenn frá Efraím. Gíleað er mitt í Efraím, mitt í Manasse.“
5
Íbúar Gíleaðs settust um Jórdanarvöðin yfir til Efraíms. Og þegar flóttamaður úr Efraím sagði: „Leyfið mér að fara yfir,“ þá sögðu íbúarnir í Gíleað við hann: „Ert þú Efraímíti?“ Ef hann svaraði: „Nei,“
6
sögðu þeir við hann: „Segðu Sjibbólet.“ Ef hann sagði: „Sibbólet,“ og gætti þess ekki að bera það rétt fram gripu þeir hann og drápu hann við Jórdanarvöðin. Féllu þá fjörutíu og tvö þúsund af niðjum Efraíms.
7
Jefta var dómari í Ísrael í sex ár. Síðan andaðist Jefta frá Gíleað og var grafinn í einni af borgunum í Gíleað.
8
Eftir Jefta varð Íbsan frá Betlehem dómari í Ísrael.
9
Hann átti þrjátíu syni og þrjátíu dætur gifti hann burt frá sér og þrjátíu konur fékk hann sonum sínum annars staðar að. Hann var dómari í Ísrael sjö ár.
10
Síðan andaðist Íbsan og var grafinn í Betlehem.
11
Eftir hann varð Elón, niðji Sebúlons, dómari í Ísrael. Hann var dómari í Ísrael tíu ár.
12
Síðan andaðist Elón, niðji Sebúlons, og var grafinn í Ajalon í Sebúlonslandi.
13
Eftir hann var Abdón Híllelsson frá Píratón dómari í Ísrael.
14
Hann átti fjörutíu syni og þrjátíu sonasyni sem riðu sjötíu ösnufolum. Hann var dómari í Ísrael átta ár.
15
Síðan andaðist Abdón Híllelsson frá Píratón og var grafinn í Píratón í Efraímslandi á fjöllum Amalekíta.
← Chapter 11
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 13 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21