bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Zephaniah 1
Zephaniah 1
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 2 →
1
Orð Drottins sem kom til Sefanía Kúsísonar, Gedaljasonar, Amarjasonar, Hiskíasonar á dögum Jósía Amónssonar Júdakonungs.
2
Ég mun gereyða öllu af yfirborði jarðar, segir Drottinn.
3
Ég mun eyða mönnum og skepnum, ég mun eyða fuglum himinsins og fiskum sjávarins, ég mun leiða hina óguðlegu til falls og þurrka út mennina af ásjónu jarðarinnar, segir Drottinn.
4
Ég mun hefja hönd mína gegn Júda og öllum Jerúsalembúum og afmá af þeim stað öll ummerki Baals, nöfn hofgoðanna og prestanna,
5
þá sem falla fram á húsþökum fyrir herskörum himinsins og þá sem falla fram fyrir Drottni og sverja við hann en sverja þó við Milkóm,
6
og eins þá sem snúið hafa baki við Drottni og hvorki leita Drottins né spyrja hann ráða.
7
Verið hljóð frammi fyrir Drottni Guði því að dagur Drottins er í nánd. Drottinn hefur efnt til sláturfórnar, gesti sína hefur hann þegar helgað.
8
Á fórnardegi Drottins mun ég refsa höfðingjunum og konungssonunum og öllum þeim sem bera erlend klæði.
9
Á þeim degi refsa ég öllum þeim sem stökkva yfir þröskuldinn, þeim sem fylla hús Drottins síns með ofbeldi og svikum.
10
Á þeim degi, segir Drottinn, munu neyðaróp berast úr Fiskhliðinu, kveinstafir frá nýja borgarhverfinu og angistaróp frá hæðunum.
11
Þeir munu kveina sem búa í lágborginni því að allir kaupmenn verða horfnir og afmáðir allir þeir er silfur vega.
12
Á þeim degi mun ég grandskoða Jerúsalem með ljóskerum og hegna þeim sem liggja andvaralausir og hugsa með sér: „Drottinn mun ekkert aðhafast, hvorki gott né illt.“
13
Auður þeirra verður að ránsfeng og heimili þeirra að auðn. Þeir munu byggja hús en eigi búa í þeim, gera sér víngarða en ekki njóta vínsins.
14
Í nánd er hinn mikli dagur Drottins, hann er í nánd og færist óðfluga nær. Bitran hljóm fær dagur Drottins og beiskleg verða óp kappans.
15
Dagur reiði verður dagur sá, dagur neyðar og þrengingar, dagur eyðingar og auðnar, dagur myrkurs og sorta, dagur skýja og dimmu,
16
dagur hornaþyts og herópa gegn víggirtu borgunum og varðturnunum háu.
17
Ég mun skelfa þessa menn og þeir munu reika um sem blindir menn því að þeir hafa syndgað gegn Drottni. Blóði þeirra verður þyrlað sem ryki og innyflum þeirra sem saur.
18
Hvorki silfur þeirra né gull megnar að bjarga þeim. Á reiðidegi Drottins og í heiftarbáli hans verður öllu landinu eytt. Gereyðingu og bráða tortímingu býr hann öllum sem í landinu eru.
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 2 →
All chapters:
1
2
3