bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Zephaniah 2
Zephaniah 2
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 1
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 3 →
1
Safnast, kom saman, þú blygðunarlausa þjóð,
2
áður en stundin rennur sem feykist hjá eins og hismi, áður en hin brennandi reiði Drottins kemur yfir þig, áður en reiðidagur Drottins kemur yfir þig.
3
Leitið Drottins, allir hógværir í landinu sem farið að boðum hans. Ástundið réttlæti, ástundið auðmýkt. Ef til vill veitist yður hæli á reiðidegi Drottins.
4
Því að Gasa verður yfirgefin og Askalon fer í eyði. Íbúar Asdódborgar munu hraktir burt um hábjartan dag og Ekron verður lögð í eyði.
5
Vei þér, þjóð Kreta, sem býrð við sjávarsíðuna. Orð Drottins beinist gegn þér, Kanaan, land Filistea. Þig mun ég gera að mannlausri auðn.
6
Við sjávarsíðuna verður athvarf fjárhirða og sauðfjárkvíar.
7
Hún fellur í hlut þeim sem eftir verða af ætt Júda. Þar munu þeir beita fé sínu og leggjast til hvílu að kvöldi í húsum Askalonborgar. Því að Drottinn, Guð þeirra, mun vitja þeirra og snúa við högum þeirra.
8
Ég hef hlýtt á háðsyrði Móabs og skopyrði Ammónsbúa sem lítilsvirtu þjóð mína og hreyktu sér yfir landi hennar.
9
Svo sannarlega sem ég lifi, segir Drottinn allsherjar, Guð Ísraels, mun Móab farnast eins og Sódómu og Ammónsbúum eins og Gómorru. Illgresi og saltgrafir verða þar og auðn að eilífu. Þar munu leifar lýðs míns ræna og þar munu þeir hreppa hlut sinn sem eftir verða af þjóð minni.
10
Þannig gjalda þeir fyrir drambsemina, spottið og smánaryrðin sem þeir hafa haft í frammi við lýð Drottins allsherjar.
11
Ógurlegur mun Drottinn allsherjar reynast þeim, hann dregur þrótt úr öllum guðum jarðarinnar og hver maður mun lúta honum, allar þjóðir eylandanna, hver á sínum stað.
12
Þér, Eþíópíumenn, fallið einnig fyrir sverði mínu.
13
Hann mun hefja arm sinn gegn norðri og tortíma Assýríu, gera Níníve að auðn, að vatnslausri eyðimörk.
14
Þar munu hjarðir liggja, allar tegundir dýra. Dvergkrákur og uglur munu gera sér náttból á súlum hennar. Uglur væla í gluggum og hrafnar krunka við þröskuldana því að sedrusþilin hafa verið rifin.
15
Þetta var þá borg glaumsins, sem uggði ekki að sér og hugsaði í hjarta sínu: „Ég og engin önnur.“ Hvílík auðn er hún orðin, bæli villidýra. Sá sem nú fer þar hjá hnussar og veifar hendinni.
← Chapter 1
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 3 →
All chapters:
1
2
3