bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Zephaniah 3
Zephaniah 3
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 2
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
1
Vei þessari saurguðu, vanhelguðu borg ofstopans.
2
Hún hefur óhlýðnast, ekki tekið áminningum. Hún hefur hvorki treyst Drottni né nálgast Guð sinn.
3
Valdhafar hennar eru öskrandi ljón, dómarar hennar úlfar næturinnar sem ekki geyma ónagað bein til morguns.
4
Spámenn hennar eru svikulir og brigðulir í orðum. Prestar hennar vanhelga það sem heilagt er og misbjóða lögmálinu.
5
En í borginni er hinn réttláti Drottinn, hann aðhefst ekkert rangt. Hann birtir dóm sinn á hverjum morgni, það bregst ekki fremur en dögunin. En hinn rangláti kann ekki að blygðast sín.
6
Þjóðum hef ég tortímt og steypt varðturnum þeirra. Stræti þeirra hef ég eytt af fólki svo að þar er enginn á ferð, borgir þeirra eru í rúst, mannlausar, og þar búa engir framar.
7
Og ég vænti að þú óttaðist mig, tækir áminningu minni, að ekki dyldist augum hennar refsingin sem ég kallaði yfir hana. En því meir hafa þeir kappkostað að snúa verkum sínum til ills.
8
Bíðið, segir Drottinn, bíðið dagsins þegar ég kem sem ákærandi. Því að ég hef ákveðið að safna þjóðunum saman og stefna saman konungsríkjunum til að ausa yfir þau reiði minni, allri minni logandi heift. Já, fyrir eldi bræði minnar mun öll jörðin eyðast.
9
Þá mun ég gefa þjóðunum nýjar varir og hreinar svo að þær geti ákallað nafn Drottins og þjónað honum einhuga.
10
Dreifðir þjónar mínir handan fljóta Eþíópíu munu koma og færa mér fórnargjafir.
11
Á þeim degi þarftu ekki að bera kinnroða vegna illverka þinna þegar þú hafnaðir mér því að þá mun ég fjarlægja þá sem kætast og hreykja sér af þér og þú munt ekki framar ofmetnast á mínu heilaga fjalli.
12
En meðal þín mun ég skilja eftir fátæka og hógværa þjóð og hún mun leita hælis í nafni Drottins.
13
Þeir sem eftir verða af Ísrael munu hvorki viðhafa rangindi né ósannindi. Svikul tunga verður ekki í munni þeirra. Þeir munu komast á beit og hvílast og enginn verður til að styggja þá.
14
Hrópaðu af gleði, Síonardóttir! Fagnaðu hástöfum, Ísrael! Þú skalt kætast og gleðjast af öllu hjarta, dóttirin Jerúsalem.
15
Drottinn hefur ógilt refsidóminn yfir þér, hann hefur hrakið fjendur þína á brott. Konungur Ísraels, Drottinn, er með þér, engar ófarir þarftu framar að óttast.
16
Á þeim degi verður sagt við Jerúsalem: „Óttastu ekki, Síon, láttu ekki hugfallast.
17
Drottinn, Guð þinn, er hjá þér, hin frelsandi hetja. Hann mun fagna og gleðjast yfir þér, hann mun hrópa af fögnuði þín vegna eins og á hátíðisdegi og hugga með kærleika sínum
18
hina langþjáðu.“ Ég mun víkja frá þér ógæfunni, smáninni sem á þér hvílir.
19
Á þeim tíma vitja ég þeirra sem hafa þjakað þig. Ég safna saman höltum og tvístruðum og ég mun snúa smán þeirra í sæmd og frægð um alla jörðina.
20
Á þeim tíma safna ég yður saman og á þeim tíma leiði ég yður heim, því að ég geri yður fræga og nafnkunna meðal allra þjóða veraldar þegar ég sný við högum yðar í augsýn þeirra, segir Drottinn.
← Chapter 2
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
All chapters:
1
2
3