bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
/
Genesis 11
Genesis 11
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
← Chapter 10
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 12 →
1
Öll jörðin hafði eitt tungumál og ein og sömu orð.
2
Og svo bar við, er þeir fóru stað úr stað í austurlöndum, að þeir fundu láglendi í Sínearlandi og settust þar að.
3
Og þeir sögðu hver við annan: “Gott og vel, vér skulum hnoða tigulsteina og herða í eldi.” Og þeir notuðu tigulsteina í stað grjóts og jarðbik í stað kalks.
4
Og þeir sögðu: “Gott og vel, vér skulum byggja oss borg og turn, sem nái til himins, og gjörum oss minnismerki, svo að vér tvístrumst ekki um alla jörðina.”
5
Þá steig Drottinn niður til þess að sjá borgina og turninn, sem mannanna synir voru að byggja.
6
Og Drottinn mælti: “Sjá, þeir eru ein þjóð og hafa allir sama tungumál, og þetta er hið fyrsta fyrirtæki þeirra. Og nú mun þeim ekkert ófært verða, sem þeir taka sér fyrir hendur að gjöra.
7
Gott og vel, stígum niður og ruglum þar tungumál þeirra, svo að enginn skilji framar annars mál.”
8
Og Drottinn tvístraði þeim þaðan út um alla jörðina, svo að þeir urðu af að láta að byggja borgina.
9
Þess vegna heitir hún Babel, því að þar ruglaði Drottinn tungumál allrar jarðarinnar, og þaðan tvístraði hann þeim um alla jörðina.
10
Þetta er ættartala Sems: Sem var hundrað ára gamall, er hann gat Arpaksad, tveim árum eftir flóðið.
11
Og Sem lifði, eftir að hann gat Arpaksad, fimm hundruð ár og gat sonu og dætur.
12
Er Arpaksad var þrjátíu og fimm ára, gat hann Sela.
13
Og Arpaksad lifði, eftir að hann gat Sela, fjögur hundruð og þrjú ár og gat sonu og dætur.
14
Er Sela var þrjátíu ára, gat hann Eber.
15
Og Sela lifði, eftir að hann gat Eber, fjögur hundruð og þrjú ár og gat sonu og dætur.
16
Er Eber var þrjátíu og fjögurra ára, gat hann Peleg.
17
Og Eber lifði, eftir að hann gat Peleg, fjögur hundruð og þrjátíu ár og gat sonu og dætur.
18
Er Peleg var þrjátíu ára, gat hann Reú.
19
Og Peleg lifði, eftir að hann gat Reú, tvö hundruð og níu ár og gat sonu og dætur.
20
Er Reú var þrjátíu og tveggja ára, gat hann Serúg.
21
Og Reú lifði, eftir að hann gat Serúg, tvö hundruð og sjö ár og gat sonu og dætur.
22
Er Serúg var þrjátíu ára, gat hann Nahor.
23
Og Serúg lifði, eftir að hann gat Nahor, tvö hundruð ár og gat sonu og dætur.
24
Er Nahor var tuttugu og níu ára, gat hann Tara.
25
Og Nahor lifði, eftir að hann gat Tara, hundrað og nítján ár og gat sonu og dætur.
26
Er Tara var sjötíu ára, gat hann Abram, Nahor og Haran.
27
Þetta er saga Tara: Tara gat Abram, Nahor og Haran, en Haran gat Lot.
28
Og Haran dó á undan Tara föður sínum í ættlandi sínu, í Úr í Kaldeu.
29
Og Abram og Nahor tóku sér konur. Kona Abrams hét Saraí, en kona Nahors Milka, dóttir Harans, föður Milku og föður Ísku.
30
En Saraí var óbyrja, hún átti eigi börn.
31
Þá tók Tara Abram son sinn og Lot Haransson, sonarson sinn, og Saraí tengdadóttur sína, konu Abrams sonar síns, og lagði af stað með þau frá Úr í Kaldeu áleiðis til Kanaanlands, og þau komu til Harran og settust þar að.
32
Og dagar Tara voru tvö hundruð og fimm ár. Þá andaðist Tara í Harran.
← Chapter 10
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 12 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50