bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
/
Genesis 26
Genesis 26
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
← Chapter 25
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 27 →
1
Hallæri varð í landinu, annað hallæri en hið fyrra, sem var á dögum Abrahams. Fór þá Ísak til Abímeleks Filistakonungs í Gerar.
2
Og Drottinn birtist honum og mælti: “Far þú ekki til Egyptalands. Ver þú kyrr í því landi, sem ég segi þér.
3
Dvel þú um hríð í þessu landi, og ég mun vera með þér og blessa þig, því að þér og niðjum þínum mun ég gefa öll þessi lönd, og ég mun halda þann eið, sem ég sór Abraham, föður þínum.
4
Og ég mun margfalda niðja þína sem stjörnur himinsins og gefa niðjum þínum öll þessi lönd, og af þínu afkvæmi skulu allar þjóðir á jörðinni blessun hljóta,
5
af því að Abraham hlýddi minni röddu og varðveitti boðorð mín, skipanir mínar, ákvæði og lög.”
6
Og Ísak staðnæmdist í Gerar.
7
Og er menn þar spurðu um konu hans, sagði hann: “Hún er systir mín,” því að hann þorði ekki að segja: “Hún er kona mín.” “Ella kynnu,” hugsaði hann, “menn þar að myrða mig vegna Rebekku, af því að hún er fríð sýnum.”
8
Og svo bar við, er hann hafði verið þar um hríð, að Abímelek Filistakonungur leit út um gluggann og sá, að Ísak lét vel að Rebekku konu sinni.
9
Þá kallaði Abímelek á Ísak og mælti: “Sjá, vissulega er hún kona þín. Og hvernig gast þú sagt: ‘Hún er systir mín’?” Og Ísak sagði við hann: “Ég hugsaði, að ella mundi ég láta lífið fyrir hennar sakir.”
10
Og Abímelek mælti: “Hví hefir þú gjört oss þetta? Hæglega gat það viljað til, að einhver af lýðnum hefði lagst með konu þinni, og hefðir þú þá leitt yfir oss syndasekt.”
11
Síðan bauð Abímelek öllum landslýðnum og mælti: “Hver sem snertir þennan mann og konu hans, skal vissulega deyja.”
12
Og Ísak sáði í þessu landi og uppskar hundraðfalt á því ári, því að Drottinn blessaði hann.
13
Og maðurinn efldist og auðgaðist meir og meir, uns hann var orðinn stórauðugur.
14
Og hann átti sauðahjarðir og nautahjarðir og margt þjónustufólk, svo að Filistar öfunduðu hann.
15
Alla þá brunna, sem þjónar föður Ísaks höfðu grafið á dögum Abrahams, föður hans, byrgðu Filistar og fylltu með mold.
16
Og Abímelek sagði við Ísak: “Far þú burt frá oss, því að þú ert orðinn miklu voldugri en vér.”
17
Þá fór Ísak þaðan og tók sér bólfestu í Gerardal og bjó þar.
18
Og Ísak lét aftur grafa upp brunnana, sem þeir höfðu grafið á dögum Abrahams föður hans og Filistar höfðu aftur byrgt eftir dauða Abrahams, og gaf þeim hin sömu heiti sem faðir hans hafði gefið þeim.
19
Þrælar Ísaks grófu í dalnum og fundu þar brunn lifandi vatns.
20
En fjárhirðar í Gerar deildu við fjárhirða Ísaks og sögðu: “Vér eigum vatnið.” Og hann nefndi brunninn Esek, af því að þeir höfðu þráttað við hann.
21
Þá grófu þeir annan brunn, en deildu einnig um hann, og hann nefndi hann Sitna.
22
Eftir það fór hann þaðan og gróf enn brunn. En um hann deildu þeir ekki, og hann nefndi hann Rehóbót og sagði: “Nú hefir Drottinn rýmkað um oss, svo að vér megum vaxa í landinu.”
23
Og þaðan fór hann upp til Beerseba.
24
Þá hina sömu nótt birtist Drottinn honum og mælti: “Ég er Guð Abrahams, föður þíns. Óttast þú eigi, því að ég er með þér. Og ég mun blessa þig og margfalda afkvæmi þitt fyrir sakir Abrahams, þjóns míns.”
25
Og hann reisti þar altari og ákallaði nafn Drottins og setti þar tjald sitt, og þrælar Ísaks grófu þar brunn.
26
Þá kom Abímelek til hans frá Gerar og Akúsat, vinur hans, og Píkól, hershöfðingi hans.
27
Þá sagði Ísak við þá: “Hví komið þér til mín, þar sem þér þó hatið mig og hafið rekið mig burt frá yður?”
28
En þeir svöruðu: “Vér höfum berlega séð, að Drottinn er með þér. Fyrir því sögðum vér: ‘Eiður sé milli vor, milli vor og þín,’ og vér viljum gjöra við þig sáttmála:
29
Þú skalt oss ekki mein gjöra, svo sem vér höfum eigi snortið þig og svo sem vér höfum eigi gjört þér nema gott og látið þig fara í friði, því að þú ert nú blessaður af Drottni.”
30
Eftir það gjörði hann þeim veislu, og þeir átu og drukku.
31
Og árla morguninn eftir unnu þeir hver öðrum eiða. Og Ísak lét þá í burt fara, og þeir fóru frá honum í friði.
32
Þann sama dag bar svo við, að þrælar Ísaks komu og sögðu honum frá brunninum, sem þeir höfðu grafið, og mæltu við hann: “Vér höfum fundið vatn.”
33
Og hann nefndi hann Síba. Fyrir því heitir borgin Beerseba allt til þessa dags.
34
Er Esaú var fertugur að aldri, gekk hann að eiga Júdít, dóttur Hetítans Beerí, og Basmat, dóttur Hetítans Elons.
35
Og var þeim Ísak og Rebekku sár skapraun að þeim.
← Chapter 25
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 27 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50