bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
/
Genesis 50
Genesis 50
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
← Chapter 49
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
1
Jósef laut þá ofan að andliti föður síns og grét yfir honum og kyssti hann.
2
Og Jósef bauð þjónum sínum, læknunum, að smyrja föður sinn. Og læknarnir smurðu Ísrael,
3
en til þess gengu fjörutíu dagar, því að svo lengi stendur á smurningunni. Og Egyptar syrgðu hann sjötíu daga.
4
Er sorgardagarnir voru liðnir, kom Jósef að máli við hirðmenn Faraós og mælti: “Hafi ég fundið náð í augum yðar, þá berið Faraó þessi orð mín:
5
Faðir minn tók eið af mér og sagði: ‘Sjá, nú mun ég deyja. Í gröf minni, sem ég gróf handa mér í Kanaanlandi, skaltu jarða mig.’ Leyf mér því að fara og jarða föður minn. Að því búnu skal ég koma aftur.”
6
Og Faraó sagði: “Far þú og jarða föður þinn, eins og hann lét þig vinna eið að.”
7
Og Jósef fór að jarða föður sinn, og með honum fóru allir þjónar Faraós, öldungar hirðarinnar og allir öldungar Egyptalands
8
og allir heimilismenn Jósefs, svo og bræður hans og heimilismenn föður hans. Aðeins létu þeir börn sín, sauði sína og nautgripi eftir verða í Gósenlandi.
9
Í för með honum voru vagnar og riddarar, og var það stórmikið föruneyti.
10
En er þeir komu til Góren-haatad, sem er hinumegin við Jórdan, þá hófu þeir þar harmakvein mikið og hátíðlegt mjög, og hann hélt sorgarhátíð eftir föður sinn í sjö daga.
11
Og er landsbúar, Kanaanítar, sáu sorgarhátíðina í Góren-haatad, sögðu þeir: “Þar halda Egyptar mikla sorgarhátíð.” Fyrir því var sá staður nefndur Abel Mísraím. Liggur hann hinumegin við Jórdan.
12
Synir hans gjörðu svo við hann sem hann hafði boðið þeim.
13
Og synir hans fluttu hann til Kanaanlands og jörðuðu hann í helli Makpelalands, sem Abraham hafði keypt ásamt akrinum fyrir grafreit af Efron Hetíta, gegnt Mamre.
14
Og Jósef fór aftur til Egyptalands, er hann hafði jarðað föður sinn, hann og bræður hans og allir, sem með honum höfðu farið að jarða föður hans.
15
Er bræður Jósefs sáu að faðir þeirra var dáinn, hugsuðu þeir: “En ef Jósef nú fjandskapaðist við oss og launaði oss allt hið illa, sem vér höfum gjört honum!”
16
Og þeir gjörðu Jósef svolátandi orðsending: “Faðir þinn mælti svo fyrir, áður en hann dó:
17
‘Þannig skuluð þér mæla við Jósef: Æ, fyrirgef bræðrum þínum misgjörð þeirra og synd, að þeir gjörðu þér illt.’ Fyrirgef því misgjörðina þjónum þess Guðs, sem faðir þinn dýrkaði.” Og Jósef grét, er þeir mæltu svo til hans.
18
Því næst komu bræður hans sjálfir og féllu fram fyrir honum og sögðu: “Sjá, vér erum þrælar þínir.”
19
En Jósef sagði við þá: “Óttist ekki, því að er ég í Guðs stað?
20
Þér ætluðuð að gjöra mér illt, en Guð sneri því til góðs, til að gjöra það, sem nú er fram komið, að halda lífinu í mörgu fólki.
21
Verið því óhræddir, ég skal annast yður og börn yðar.” Síðan hughreysti hann þá og talaði við þá blíðlega.
22
Jósef bjó í Egyptalandi, hann og ættlið föður hans. Og Jósef varð hundrað og tíu ára gamall.
23
Og Jósef sá niðja Efraíms í þriðja lið. Og synir Makírs, sonar Manasse, fæddust á kné Jósefs.
24
Og Jósef sagði við bræður sína: “Nú mun ég deyja. En Guð mun vissulega vitja yðar og flytja yður úr þessu landi til þess lands, sem hann hefir svarið Abraham, Ísak og Jakob.”
25
Og Jósef tók eið af Ísraels sonum og mælti: “Sannlega mun Guð vitja yðar. Flytjið þá bein mín héðan.”
26
Og Jósef dó hundrað og tíu ára gamall, og þeir smurðu hann, og hann var kistulagður í Egyptalandi.
← Chapter 49
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50