bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
1 Samuel 11
1 Samuel 11
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 10
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 12 →
1
Nahas frá Ammón hélt í herför og settist um Jabes í Gíleað. Þá sögðu Jabesbúar við Nahas: „Gerðu sáttmála við okkur, þá verðum við þér undirgefnir.“
2
Ammónítinn Nahas svaraði þeim: „Ég skal gera sáttmála við ykkur með því skilyrði að ég fái að stinga hægra augað úr ykkur öllum og hæða þannig allan Ísrael.“
3
Öldungar Jabesborgar svöruðu honum: „Gefðu okkur sjö daga frest svo að við getum sent boðbera um allt land Ísraels. Sé þar enginn sem getur bjargað okkur gefumst við upp fyrir þér.“
4
Þegar sendimennirnir komu til Gíbeu Sáls og báru upp erindi sitt við íbúana tóku allir að gráta hástöfum.
5
En rétt í því kom Sál á eftir nautum sínum úr haganum og spurði: „Hvað er að fólkinu, af hverju grætur það?“ Honum var þá sagt frá erindi mannanna frá Jabes.
6
Þegar Sál heyrði það kom andi Guðs yfir hann og reiði hans blossaði upp.
7
Hann tók tvö naut, hjó þau í smátt og sendi hlutana með sendiboðunum um allt land Ísraels og lét þessa orðsendingu fylgja: „Þannig fer fyrir nautum hvers þess manns sem ekki fylgir Samúel og Sál.“ Þá kom ótti Drottins yfir fólkið og það hélt út í stríðið sem einn maður.
8
Þegar Sál kannaði liðið í Besek reyndust Ísraelsmenn þrjú hundruð þúsund og Júdamenn þrjátíu þúsund.
9
Þá sagði hann við sendiboðana sem komnir voru: „Skilið þessu til Jabesbúa í Gíleað: Á morgun, áður en sól er hæst á lofti, berst ykkur hjálp.“ Jabesbúar glöddust er sendiboðarnir fluttu þeim þessi boð
10
og sögðu við Ammónítana: „Á morgun gefumst við upp fyrir ykkur. Þá getið þið gert við okkur það sem ykkur sýnist.“
11
Morguninn eftir skipti Sál liðinu í þrjár fylkingar. Um morgunvökuna brutust liðsmenn hans inn í herbúðir Ammóníta og er sól var hæst á lofti höfðu þeir gengið milli bols og höfuðs á þeim. Þeim sem sluppu lifandi var tvístrað svo að hvergi voru tveir saman sem komist höfðu lífs af.
12
Þá sagði fólkið við Samúel: „Hver var það sem spurði: Á Sál að ríkja yfir okkur? Leiðið mennina fram svo að við getum drepið þá.“
13
En Sál sagði: „Í dag verður enginn tekinn af lífi því að á þessum degi hefur Drottinn bjargað Ísrael.“
14
En Samúel sagði við fólkið: „Komið, við skulum fara til Gilgal og endurnýja þar konungdóminn.“
15
Því næst gekk allt fólkið þangað og gerði Sál að konungi fyrir augliti Drottins í Gilgal. Það slátraði heillafórnum fyrir augliti Drottins. Sál og allir Ísraelsmenn glöddust mjög.
← Chapter 10
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 12 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31