bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
1 Samuel 31
1 Samuel 31
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 30
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
1
Filistear réðust nú á Ísrael og flýðu Ísraelsmenn undan þeim en margir lágu fallnir á Gilbóafjalli.
2
Filistear þrengdu mjög að Sál og felldu Jónatan, Abínadab og Malkísúa, syni hans.
3
Var nú gerð hörð atlaga að Sál. Nokkrar bogaskyttur höfðu komið auga á hann, hæft hann og var hann mikið særður.
4
Þá sagði Sál við skjaldsvein sinn: „Dragðu sverð þitt úr slíðrum og rektu mig í gegn. Annars koma þeir óumskornu, reka mig í gegn og fara háðulega með mig.“ En skjaldsveinninn vildi ekki gera þetta því að hann var mjög hræddur. Þá tók Sál sverð sitt og lét fallast á það.
5
Þegar skjaldsveinninn sá að Sál var látinn lét hann sig einnig falla á sverð sitt og dó með Sál.
6
Þannig lét Sál lífið og synir hans þrír, skjaldsveinn hans og menn hans, allir saman á einum degi.
7
Þegar þeir Ísraelsmenn, sem bjuggu handan við sléttuna og austan við Jórdan, gerðu sér grein fyrir að Ísraelsmenn voru flúnir og Sál og synir hans fallnir yfirgáfu þeir borgir sínar og flýðu. Síðan komu Filistear og settust að í þeim.
8
Daginn eftir, þegar Filistear komu til að ræna valinn, fundu þeir Sál og syni hans þrjá fallna á Gilbóafjalli.
9
Þeir hjuggu af honum höfuðið og rændu vopnum hans. Síðan sendu þeir menn um land Filistea til að tilkynna fólkinu sigurinn og kunngjöra hann í húsi guða sinna.
10
Vopnum Sáls komu þeir fyrir í hofi Astarte en lík hans festu þeir á borgarmúrinn í Bet San.
11
Þegar íbúarnir í Jabes í Gíleað fréttu hvernig Filistear höfðu farið með Sál
12
héldu allir vopnfærir menn af stað og gengu alla nóttina. Þeir tóku síðan lík Sáls og sona hans niður af borgarmúrnum í Bet San og þegar þeir komu heim til Jabes brenndu þeir líkin þar.
13
Því næst tóku þeir bein þeirra og grófu þau undir eikinni í Jabes og föstuðu í sjö daga.
← Chapter 30
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31