bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
1 Samuel 5
1 Samuel 5
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 4
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 6 →
1
Filistear höfðu tekið örk Guðs herfangi og flutt hana frá Ebeneser til Asdód.
2
Nú tóku þeir örk Guðs og fluttu hana í hús Dagóns og komu henni fyrir við hliðina á Dagón.
3
Morguninn eftir, þegar Asdódbúar fóru á fætur, hafði Dagónlíkneskið fallið til jarðar og lá á grúfu fyrir framan örk Drottins. Þeir tóku þá Dagón og settu hann aftur á sinn stað.
4
Þegar þeir fóru á fætur næsta morgun hafði Dagón enn fallið til jarðar og lá á grúfu fyrir framan örk Drottins. Höfuð og hendur höfðu brotnað af Dagón þegar hann féll á þröskuldinn, bolurinn einn var eftir.
5
Þetta er ástæða þess að prestar Dagóns og aðrir, sem ganga í hús Dagóns, stíga aldrei á þröskuld Dagóns í Asdód allt til þessa dags.
6
Hönd Drottins lagðist þungt á Asdódbúa. Hann skelfdi þá og sló þá kýlum, bæði íbúana í Asdódborg og héraðinu umhverfis.
7
Þegar það rann upp fyrir Asdódbúum hvað gerst hafði sögðu þeir: „Við getum ekki lengur varðveitt örk Ísraels Guðs því að hönd hans leggst þungt á okkur og Dagón, guð okkar.“
8
Þá sendu þeir menn, sem stefndu saman öllum höfðingjum Filistea, og spurðu þá: „Hvað eigum við að gera við örk Ísraels Guðs?“ Þeir svöruðu: „Það á að flytja örk Ísraels Guðs til Gat.“ Því næst var örk Ísraels Guðs flutt þangað.
9
Þegar örkin hafði verið flutt til Gat lagðist hönd Drottins þungt á borgina og olli mikilli skelfingu. Hann sló borgarbúa kýlum, unga sem gamla.
10
Þá var örk Guðs send til Ekron. Þegar hún kom þangað hrópuðu borgarbúar: „Örk Ísraels Guðs hefur verið flutt til okkar til að deyða okkur og þjóð okkar.“
11
Þá sendu þeir menn, sem stefndu saman öllum höfðingjum Filistea, og sögðu: „Losið ykkur við örk Ísraels Guðs. Sendið hana aftur þangað sem hún á heima svo að hún drepi okkur ekki og þjóðina alla.“ Allir borgarbúar voru felmtri slegnir því að hönd Guðs lagðist mjög þungt á þá.
12
Þeir sem héldu lífi voru slegnir kýlum og kvein borgarbúa steig til himins.
← Chapter 4
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 6 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31