bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Exodus 15
Exodus 15
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 14
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 16 →
1
Þá sungu Móse og Ísraelsmenn Drottni þennan söng: Ég vil lofsyngja Drottni því að hann er hátt upphafinn. Hestum og riddurum steypti hann í hafið.
2
Drottinn er styrkur minn og lofsöngur, hann kom mér til hjálpar. Hann er Guð minn, ég vil vegsama hann, Guð föður míns, ég vil hylla hann.
3
Drottinn er stríðshetja, Drottinn er nafn hans.
4
Vögnum faraós og hestum steypti hann í hafið, úrvalsvagnliði hans drekkti hann í Sefhafinu.
5
Djúpin huldu þá, eins og steinn sukku þeir í hafdjúpið.
6
Hægri hönd þín, Drottinn, hefur gert sig dýrlega með afli, hægri hönd þín, Drottinn, kremur fjandmenn.
7
Með mikilli hátign þinni leggur þú andstæðinga þína að velli, þú sleppir heift þinni lausri, hún gleypir þá sem hálm.
8
Fyrir blæstri nasa þinna hlóðst vatnið upp, boðarnir stóðu sem veggir, öldurnar stirðnuðu mitt í hafinu.
9
Óvinurinn sagði: „Ég ætla að sækja fram, ná til þeirra, skipta herfangi, seðja með þeim hungur mitt, draga sverð úr slíðrum, hönd mín skal eyða þeim.“
10
Þú blést með anda þínum, hafið luktist yfir þeim, þeir sukku sem blý í hið mikla haf.
11
Hver meðal guðanna er sem þú, Drottinn? Hver er sem þú, máttugur og heilagur, ógnvekjandi í dýrð þinni, þú sem vinnur máttarverk?
12
Þú réttir út hægri hönd, jörðin gleypti þá.
13
Þú leiðbeindir af gæsku þjóðinni sem þú frelsaðir, leiddir hana með mætti þínum til heilags bústaðar þíns.
14
Þjóðirnar heyrðu um þetta, þær titruðu, skjálfti greip íbúa Filisteu,
15
höfðingjar Edóms skelfdust ótti greip leiðtoga Móabs, allir íbúar Kanaans misstu kjarkinn,
16
skelfing greip þá og ótti, frammi fyrir mætti arms þíns urðu þeir hljóðir sem steinn þegar þjóð þín, Drottinn, fór leiðar sinnar, þegar þjóðin, sem þú eignaðist, fór leiðar sinnar.
17
Þú leiddir þá heim, gróðursettir þá á fjallinu sem er eign þín, á staðnum sem þú gerðir að bústað þínum, í helgidóminum, Drottinn, sem hendur þínar lögðu grunn að.
18
Drottinn er konungur um aldur og ævi.
19
Þegar hestar faraós ásamt hervögnum hans og riddurum héldu út í hafið lét Drottinn vatnið í hafinu falla yfir þá en Ísraelsmenn gengu á þurru mitt í gegnum hafið.
20
Þá tók spákonan Mirjam, systir Arons, trumbu sér í hönd og allar aðrar konur héldu á eftir henni með trumbuslætti og dansi. Mirjam söng fyrir þeim:
21
Lofsyngið Drottni því að hann er hátt upp hafinn, hestum og riddurum steypti hann í hafið.
22
Móse lét nú Ísrael leggja af stað frá Sefhafinu. Þeir héldu út í Súreyðimörkina og gengu í þrjá daga um hana án þess að finna vatn.
23
Þegar þeir komu til Mara gátu þeir ekki drukkið vatnið þar því að það var rammt. Þess vegna nefnist staðurinn Mara.
24
Þá möglaði fólkið gegn Móse og spurði: „Hvað eigum við að drekka?“
25
Hann hrópaði á hjálp til Drottins og Drottinn sýndi honum tré. Móse kastaði því í vatnið og þá varð það ferskt. Þar setti hann þjóðinni lög og reglur og reyndi hana.
26
Hann sagði: „Ef þú hlýðir á rödd Drottins, Guðs þíns, og breytir eftir því sem rétt er í augum hans, hlýðir á fyrirmæli hans og heldur öll lög hans mun ég ekki leggja á þig neina þá sjúkdóma sem ég lagði á Egypta því að ég er Drottinn, græðari þinn.“
27
Síðan komu þeir til Elím. Þar voru tólf uppsprettur og sjötíu pálmar. Þeir tjölduðu þar við vatnið.
← Chapter 14
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 16 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
Recommended Reading
Commentary
Exodus Commentaries
→
Devotional
Exodus Devotional Guide
→
Get This Bible
2007 Study Bible
→