bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Exodus 6
Exodus 6
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 5
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 7 →
1
En Drottinn svaraði Móse: „Nú færðu að sjá hvað ég ætla að gera faraó því að neyddur af máttugri hendi lætur hann þá lausa, neyddur af máttugri hendi rekur hann þá úr landi sínu.“
2
Guð ávarpaði Móse og sagði við hann: „Ég er Drottinn.
3
Ég birtist Abraham, Ísak og Jakobi sem almáttugur Guð en undir nafninu Drottinn opinberaði ég mig ekki.
4
Ég gerði einnig við þá þann sáttmála að gefa þeim Kanaansland, landið sem þeir dvöldust í sem aðkomumenn.
5
Ég heyrði kvein Ísraelsmanna sem Egyptar gerðu að þrælum og minntist sáttmála míns.
6
Segðu því við Ísraelsmenn: Ég er Drottinn. Ég ætla að leiða ykkur úr kvaðavinnunni hjá Egyptum og bjarga ykkur úr þrældómnum. Ég ætla að frelsa ykkur með útréttum armi og þungum refsidómum.
7
Ég ætla að taka ykkur að mér sem þjóð og verða Guð ykkar. Þið munuð komast að raun um að ég er Drottinn, Guð ykkar, sem leiðir ykkur úr ánauð Egypta.
8
Ég ætla að leiða ykkur til landsins sem ég sór að gefa Abraham, Ísak og Jakobi. Ég ætla að fá ykkur það til eignar, ég, Drottinn.“
9
Móse sagði Ísraelsmönnum frá þessu en þeir hlustuðu ekki á hann af því að þeir voru kjarklausir og bugaðir af þrældómi.
10
Þá ávarpaði Drottinn Móse og sagði:
11
„Farðu og segðu faraó, Egyptalandskonungi, að hann eigi að sleppa Ísraelsmönnum úr landi sínu.“
12
Móse talaði fyrir augliti Drottins og sagði: „Ísraelsmenn hlustuðu ekki á mig, hvers vegna ætti faraó að hlusta á mig svo málstirður sem ég er?“
13
Þá talaði Drottinn við Móse og Aron og gaf þeim fyrirmæli um að fara til Ísraelsmanna og faraós, Egyptalandskonungs, til að Ísraelsmenn yrðu leiddir út úr Egyptalandi.
14
Þessir eru ættarhöfðingjar: Synir Rúbens, frumburðar Ísraels, voru Hanok, Pallú, Hesrón og Karmí; þetta eru ættir Rúbens.
15
Synir Símeons voru Jemúel, Jamín, Óhad, Jakín, Sóhar og Sál sem var sonur kanverskrar konu; þetta eru ættir Símeons.
16
Þetta eru nöfn sona Leví samkvæmt ættartölum þeirra: Gerson, Kahat og Merarí. Leví varð hundrað þrjátíu og sjö ára.
17
Synir Gersons voru Líbní og Símeí eftir ættum þeirra.
18
Synir Kahats voru Amram, Jísehar, Hebron og Ússíel. Kahat varð hundrað þrjátíu og þriggja ára.
19
Synir Merarí voru Mahelí og Músí. Þetta eru ættir Leví eftir ættartölum þeirra.
20
Amram tók sér Jókebed, föðursystur sína, fyrir eiginkonu. Hún ól honum Aron og Móse. Amram varð hundrað þrjátíu og sjö ára.
21
Synir Jísehars voru Kóra, Nefeg og Síkrí.
22
Synir Ússíels voru Mísael, Elsafan og Síkrí.
23
Aron tók sér Elísebu, dóttur Ammínadabs, systur Nahsons, fyrir eiginkonu. Hún ól honum Nadab, Abíhú, Eleasar og Ítamar.
24
Synir Kóra voru Assír, Elkana og Abíasaf. Þetta eru ættir Kóraíta.
25
Eleasar, sonur Arons, tók sér eina af dætrum Pútíels fyrir eiginkonu. Hún ól honum Pínehas. Þetta eru ættarhöfðingjar Levíta eftir ættum þeirra.
26
Það voru Aron og Móse sem Drottinn sagði við: „Leiðið Ísraelsmenn út úr Egyptalandi fylktu liði.“
27
Það voru þeir sem töluðu við faraó, Egyptalandskonung, um að leiða Ísraelsmenn út úr Egyptalandi; það voru þeir Móse og Aron.
28
Þegar Drottinn ávarpaði Móse í Egyptalandi
29
sagði hann: „Ég er Drottinn. Segðu faraó, Egyptalandskonungi, allt sem ég segi við þig.“
30
Móse svaraði frammi fyrir augliti Drottins: „Ég er maður málstirður. Hvers vegna ætti faraó að hlusta á mig?“
← Chapter 5
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 7 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40