bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Exodus 40
Exodus 40
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 39
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
1
Drottinn ávarpaði Móse og sagði:
2
„Á fyrsta degi fyrsta mánaðarins skaltu reisa tjaldbúðina, samfundatjaldið.
3
Þar skaltu koma sáttmálsörkinni fyrir og hylja örkina með fortjaldinu.
4
Síðan skaltu koma inn með borðið og raða á það því sem því fylgir. Þá skaltu koma með ljósastikuna og hengja lampana á hana.
5
Þú skalt setja hið gullna reykelsisaltari fyrir framan sáttmálsörkina og setja upp forhengið fyrir inngang tjaldbúðarinnar.
6
Þú skalt koma brennifórnaraltarinu fyrir framan við innganginn í samfundatjaldið,
7
setja kerið á milli samfundatjaldsins og altarisins og hella í það vatni.
8
Þú skalt reisa forgarðinn umhverfis og setja forhengið fyrir hlið forgarðsins.
9
Þú skalt taka smurningarolíuna og smyrja tjaldbúðina og allt sem í henni er og helga hana ásamt öllum áhöldum svo að hún verði heilög.
10
Þú skalt einnig smyrja brennifórnaraltarið og öll áhöld þess og helga altarið svo að altarið verði háheilagt.
11
Þú skalt smyrja kerið ásamt stéttinni og helga það.
12
Síðan skaltu láta Aron og syni hans ganga fram að dyrum samfundatjaldsins og þvo þá með vatni.
13
Því næst skaltu skrýða Aron hinum helga skrúða, smyrja hann og helga hann svo að hann geti þjónað mér sem prestur.
14
Þá skaltu láta syni hans ganga fram, klæða þá í kyrtla
15
og smyrja þá síðan eins og þú smurðir föður þeirra svo að þeir geti þjónað mér sem prestar. Það skal gert svo að smurning þeirra veiti þeim ævarandi prestdóm frá kyni til kyns.“
16
Móse gerði í öllu nákvæmlega eins og Drottinn bauð honum.
17
Á fyrsta degi fyrsta mánaðarins á öðru árinu var tjaldbúðin reist.
18
Móse reisti tjaldbúðina, kom fyrir sökklunum, reisti upp þiljuborðin, kom þverslánum fyrir og reisti súlurnar.
19
Hann þandi tjaldið yfir búðina og setti tjaldþakið yfir það eins og Drottinn hafði boðið Móse.
20
Síðan tók hann sáttmálstáknið, setti það í örkina, kom stöngunum fyrir á örkinni og lagði lokið á hana.
21
Hann fór með örkina inn í tjaldbúðina, hengdi upp fortjaldið svo að það hyldi sáttmálsörkina eins og Drottinn hafði boðið Móse.
22
Hann setti borðið inn í samfundatjaldið við norðurhlið tjaldbúðarinnar, framan við fortjaldið,
23
og raðaði brauðum á það í röð frammi fyrir augliti Drottins eins og Drottinn hafði boðið Móse.
24
Hann setti ljósastikuna inn í samfundatjaldið við suðurhlið tjaldbúðarinnar
25
og hengdi upp lampana frammi fyrir augliti Drottins eins og Drottinn hafði boðið Móse.
26
Hann setti gullaltarið inn í samfundatjaldið framan við fortjaldið
27
og brenndi á því ilmandi reykelsi eins og Drottinn hafði boðið Móse.
28
Síðan setti hann upp hengið fyrir inngang tjaldbúðarinnar
29
og kom því næst brennifórnaraltarinu fyrir við innganginn í tjaldbúðina, samfundatjaldið, og færði brennifórn og kornfórn eins og Drottinn hafi boðið Móse.
30
Hann kom kerinu fyrir milli samfundatjaldsins og altarisins, hellti í það vatni til þvotta
31
og þeir Móse og Aron ásamt sonum hans þvoðu sér um hendur og fætur úr því.
32
Þegar þeir gengu inn í samfundatjaldið og að altarinu þvoðu þeir sér eins og Drottinn hafði boðið Móse.
33
Hann reisti forgarðinn umhverfis tjaldbúðina og altarið og setti upp hengi fyrir hlið forgarðsins. Þannig fullkomnaði Móse verkið.
34
Þá huldi skýið samfundatjaldið og dýrð Drottins fyllti tjaldbúðina
35
svo að Móse gat ekki komist inn í samfundatjaldið því að skýið lá á því og dýrð Drottins fyllti tjaldbúðina.
36
Í hvert sinn sem skýið hóf sig upp frá tjaldbúðinni lögðu Ísraelsmenn af stað á meðan á ferð þeirra stóð.
37
Ef skýið hóf sig ekki upp lögðu þeir ekki af stað fyrr en það hófst upp.
38
Því að ský Drottins var yfir bústaðnum á daginn en eldur á nóttunni fyrir augum allra Ísraelsmanna á öllu ferðalagi þeirra.
← Chapter 39
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40