bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Song of Solomon 1
Song of Solomon 1
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 2 →
1
Ljóðaljóð Salómons.
2
Kysstu mig kossi vara þinna, atlot þín eru ljúfari en vín.
3
Yndislegur ilmur er af smyrslum þínum og nafn þitt sem dýrasta olía. Þess vegna elska stúlkurnar þig.
4
Dragðu mig með þér, hlaupum. Konungurinn leiði mig í herbergi sín. Gleðjumst og fögnum þér, lofum ást þína meira en vín; já, eins og nýtt vín elska þær þig.
5
Ég er dökk og yndisleg, Jerúsalemdætur; eins og tjöldin hjá Kedar, eins og tjalddúkarnir hjá Salma.
6
Takið ekki til þess að ég er dökkleit, að sólin hefur brennt mig. Synir móður minnar reiddust mér og settu mig til að gæta vínekranna en vínekru minnar gætti ég ekki.
7
Segðu mér, þú sem sál mín elskar, hvar heldurðu fé þínu til beitar, hvar hvílist þú um hádegið? Hví skyldi ég reika um hjá hjörðum félaga þinna?
8
Vitir þú það ekki, þú fegurst meðal kvenna, rektu þá slóð hjarðarinnar og haltu kiðlingum þínum til beitar hjá tjöldum hirðanna.
9
Við hryssu fyrir vagni faraós líki ég þér, ástin mín.
10
Yndislegir eru vangar þínir undir skrautfléttunum og háls þinn prýddur gimsteinum.
11
Gullfléttur gerum við þér greyptar á silfurspangir.
12
Konungurinn hvílir á hægindi sínu og ilminn leggur af nardussmyrslum mínum,
13
elskhugi minn er myrruknippi milli brjósta mér,
14
hennablóm er elskhugi minn mér, af vínekrunum í Engedí.
15
Hve fögur ertu, ástin mín, hve fögur, og augu þín dúfur.
16
Hve yndislegur ertu, elskhugi minn, hve fagur, og hvíla okkar iðjagræn,
17
sedrustrén máttarviðir húss okkar og kýprustrén þilviðirnir.
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 2 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8