bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Song of Solomon 2
Song of Solomon 2
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 1
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 3 →
1
Ég er rós í Saron, lilja í dölunum.
2
Sem lilja meðal þyrna er ástin mín meðal meyjanna.
3
Sem eplatré í kjarrviði ber elskhugi minn af sveinunum. Í skugga hans uni ég og ávextir hans eru gómsætir.
4
Hann leiddi mig í veisluskála og tákn ástar hans var yfir mér.
5
Nærið mig á rúsínukökum, styrkið mig með eplum, ég er máttvana af ást.
6
Vinstri hönd þín undir höfði mér, hin hægri faðmi mig.
7
Ég særi yður, Jerúsalemdætur, við dádýrin, við hindirnar á völlunum: truflið ekki, vekið ekki ástina fyrr en hún sjálf vill.
8
Elskhugi minn. Þarna kemur hann. Stekkur yfir fjöllin, hleypur yfir hæðirnar.
9
Elskhugi minn líkist dádýri eða hindarkálfi og þarna stendur hann við húsvegginn, horfir inn um gluggann, skyggnist inn um grindurnar.
10
Elskhugi minn segir við mig: Stattu upp, ástin mín fagra, komdu.
11
Veturinn er liðinn, vorregnið að baki.
12
Landið blómgast, tími söngsins er kominn, kurr turtildúfunnar heyrist í landi okkar.
13
Fíkjutrén bera ávöxt, ilm leggur af blómstrandi vínviði. Stattu upp, ástin mín fagra, komdu.
14
Dúfan mín í klettaskorum, í hamrafylgsni, sýndu mér ásýnd þína, láttu mig heyra rödd þína; rödd þín er ljúf og ásýndin yndisleg.
15
Veiðið fyrir okkur refina, yrðlingana sem spilla vínekrunum, vínekrur okkar eru í blóma.
16
Elskhugi minn er minn og ég er hans, hans sem leikur meðal lilja.
17
Þegar kular í dögun og skuggarnir flýja, snúðu þá, elskhugi minn, upp til ilmfjallanna, líkur dádýri, líkur hindarkálfi.
← Chapter 1
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 3 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8