bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Song of Solomon 4
Song of Solomon 4
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 3
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 5 →
1
Hve fögur ertu, ástin mín, hve fögur, og augu þín dúfur undir andlitsblæjunni. Hár þitt er sem geitahjörð sem rennur niður Gíleaðfjall,
2
tennur þínar ær í hóp, nýrúnar og baðaðar, allar tvílembdar og engin lamblaus.
3
Varir þínar eru sem skarlatsborði og munnur þinn yndislegur, gagnaugun eins og sneitt granatepli undir andlitsblæjunni.
4
Háls þinn er eins og turn Davíðs sem vopnum er raðað á, þar hanga þúsund skildir, öll hertygi garpanna.
5
Brjóst þín eru eins og tveir hindarkálfar, dádýrstvíburar að leik meðal lilja.
6
Þegar kular í dögun og skuggarnir flýja mun ég halda til myrruhólsins og reykelsishæðarinnar.
7
Öll ertu fögur, ástin mín, lýtalaus með öllu.
8
Komdu með mér frá Líbanonsfjalli, brúður, með mér frá Líbanonsfjalli, niður af tindi Amana, af tindum Senír og Hermon, frá bælum ljónanna, klettum hlébarðanna.
9
Þú hefur rænt hjarta mínu, systir mín, brúður, hjarta mínu hefurðu rænt með augnaráðinu einu, einum hlekk úr hálsfesti þinni.
10
Hve yndisleg eru atlot þín, systir mín, brúður, hve miklu eru atlot þín ljúfari en vín og angan smyrsla þinna betri en nokkur ilmjurt.
11
Hunang drýpur af vörum þínum, brúður, hunang og mjólk undir tungu þinni og ilmur klæða þinna er sem angan Líbanonsfjalls.
12
Lokaður garður er systir mín, brúður, byrgður brunnur, innsigluð lind.
13
Laut þín sem garður af granateplum, með gómsæta ávexti, henna og nardus,
14
nardus og saffran, ilmreyr og kanel, myrru og alóe og allar dýrustu ilmjurtir.
15
Þú ert lind í garði, lifandi vatn af Líbanonsfjalli.
16
Vakna, norðanvindur, kom, sunnanblær, anda á garð minn svo að ilmur hans berist. Elskhugi minn, komdu í garð þinn og njóttu dýrustu ávaxta hans.
← Chapter 3
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 5 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8