bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Song of Solomon 6
Song of Solomon 6
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 5
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 7 →
1
Hvert er elskhugi þinn farinn, þú, fegurst kvenna? Hvert er elskhugi þinn horfinn? Vér skulum leita hans með þér.
2
Elskhugi minn er farinn niður í garð sinn að ilmjurtareitunum, til leiks í görðunum, að tína liljur.
3
Ég er hans, elskhuga míns, og hann er minn, hann sem leikur meðal lilja.
4
Fögur ertu, ástin mín, eins og Tirsa, indæl eins og Jerúsalem, ógnandi eins og herfylking.
5
Horfðu ekki á mig, augu þín skelfa mig. Hár þitt er eins og geitahjörð sem rennur niður Gíleaðfjall,
6
tennur þínar sem ær í hóp, nýbaðaðar, allar tvílembdar, og engin lamblaus,
7
gagnaugun eins og sneitt granatepli undir andlitsblæjunni.
8
Sextíu eru drottningarnar, áttatíu hjákonurnar og ungmeyjarnar óteljandi
9
en ein er dúfan mín fullkomna, einkabarn móður sinnar, yndi hennar sem ól hana. Ungmeyjarnar sjá hana og róma hana, drottningar og hjákonur syngja henni lof.
10
Hver gægist hér fram sem morgunroðinn, fögur sem máninn, leiftrandi sem sólin, ógurleg sem herskarar stjarnanna?
11
Ég fór niður í hnetulundinn að sjá dalinn grænka, sjá hvort vínviðurinn blómstraði og granatviðurinn bæri blóm.
12
Ég var frá mér numinn, ég varð altekinn af ást.
← Chapter 5
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 7 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8