bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Amos 1
Amos 1
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 2 →
1
Orð Amosar, eins af fjárhirðunum í Tekóa, sem honum vitraðist um Ísrael á dögum Ússía Júdakonungs og á dögum Jeróbóams Jóassonar, Ísraelskonungs, tveimur árum fyrir jarðskjálftann.
2
Hann sagði: Drottinn þrumar frá Síon, lætur rödd sína gjalla frá Jerúsalem svo að hagar hjarðmannanna visna og Karmeltindur skrælnar.
3
Svo segir Drottinn: Vegna þriggja, já, vegna fjögurra glæpa Damaskus hverf ég ekki frá þessu: Af því að þeir moluðu Gíleað með þreskisleðum úr járni
4
mun ég senda eld gegn húsi Hasaels og hann mun gleypa hallir Benhadads.
5
Ég mun brjóta slagbrand Damaskus og tortíma þeim sem situr í hásæti í Bíkat Aven, þeim sem ber veldissprotann í Bet Eden. Aramear verða fluttir í útlegð til Kír, hefur Drottinn sagt.
6
Svo segir Drottinn: Vegna þriggja, já, fjögurra glæpa Gasa hverf ég ekki frá þessu: Af því að þeir hafa flutt heil byggðarlög í útlegð til að selja þau í hendur Edóm
7
mun ég senda eld gegn múrum Gasa og hann mun gleypa hallir hennar.
8
Ég mun tortíma þeim sem situr í hásæti í Asdód, þeim sem ber veldissprotann í Askalon. Því næst beini ég hendi minni gegn Ekron svo að þeim sem eftir eru af Filisteum verði eytt, hefur Drottinn Guð sagt.
9
Svo segir Drottinn: Vegna þriggja, já, vegna fjögurra glæpa Týrusar hverf ég ekki frá þessu: Af því að þeir sendu heil byggðarlög í útlegð til Edóms og virtu ekki bræðrasáttmálann
10
mun ég senda eld gegn múrum Týrusar og hann mun gleypa hallir hennar.
11
Svo segir Drottinn: Vegna þriggja, já, vegna fjögurra glæpa Edóms hverf ég ekki frá þessu: Af því að þeir ofsóttu bræður sína með sverði og kæfðu alla samúð með þeim, af því að þeir rændu í óslökkvandi reiði sinni og héldu heift sinni sífellt vakandi
12
þá mun ég senda eld til Teman og hann mun gleypa hallirnar í Bosra.
13
Svo segir Drottinn: Vegna þriggja, já, vegna fjögurra glæpa Ammóníta hverf ég ekki frá þessu: Af því að þeir ristu þungaðar konur í Gíleað á kvið, þegar þeir ætluðu að stækka land sitt,
14
mun ég kveikja eld í múrum Rabba og hann mun gleypa hallirnar þar þegar heróp kveður við orrustudaginn, þegar fárviðri geisar óveðursdaginn.
15
Konungur þeirra verður að fara í útlegð, hann og allir hirðmenn hans, segir Drottinn.
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 2 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9