bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Amos 4
Amos 4
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 3
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 5 →
1
Heyrið þetta orð, Basanskýr á Samaríufjalli, þér sem kúgið hina umkomulausu, misþyrmið fátækum og segið við eiginmenn yðar: „Komið með eitthvað að drekka.“
2
Drottinn Guð hefur svarið við heilagleika sinn: Já, takið eftir. Yfir yður koma þeir dagar að þér verðið teymdar í burtu með kjötkrókum og þær sem eftir verða með önglum.
3
Þér verðið að fara út um veggskörðin, ein og ein, beint af augum. Síðan verðið þér reknar í átt til Hermonfjalls, segir Drottinn.
4
Komið til Betel og syndgið. Komið til Gilgal og syndgið enn meira. Færið sláturfórnir yðar að morgni og tíund yðar á þriðja degi.
5
Brennið sýrt brauð í þakkarfórn, boðið til sjálfviljafórna, hrópið hátt. Þetta ástundið þér með ánægju, Ísraelsmenn, segir Drottinn Guð.
6
Ég hélt tönnum yðar hreinum í öllum borgum yðar og lét brauð skorta í öllum þorpum yðar en þér sneruð ekki aftur til mín, segir Drottinn.
7
Ég synjaði yður um regn þegar þrír mánuðir voru til uppskeru. Þá lét ég rigna á eina borg en ekki á aðra, einn akur var vökvaður regni en annar, sem ég vökvaði ekki, skrælnaði.
8
Fólk eigraði til sömu borgar frá tveimur, þremur öðrum til að fá vatn að drekka en fékk ekki nægju sína. En þér sneruð ekki aftur til mín, segir Drottinn.
9
Ég laust yður með korndrepi og gulnun, ég lét garða yðar og vínekrur þorna, engisprettur átu fíkjutré yðar og ólífutré en þér sneruð ekki aftur til mín, segir Drottinn.
10
Ég sendi drepsótt gegn yður eins og í Egyptalandi, felldi æskumenn yðar með sverði og hestar yðar urðu herfang. Ég lét nályktina í herbúðum yðar leggja fyrir vit yðar en þér sneruð ekki aftur til mín, segir Drottinn.
11
Ég kollvarpaði öllu yðar á meðal eins og ég kollvarpaði Sódómu og Gómorru. Þá urðuð þér eins og raftur úr eldi dreginn en þér sneruð ekki aftur til mín, segir Drottinn.
12
Þess vegna mun ég fara svona með þig, Ísrael, og vegna þess að ég ætla að fara svona með þig skaltu búa þig undir að mæta Guði þínum, Ísrael.
13
Sjá, hann mótar fjöllin, hann skapar vindinn, hann boðar manninum það sem hann hefur í hyggju. Hann breytir myrkri í morgunroða og gengur yfir hæðir jarðarinnar, Drottinn, Guð hersveitanna, er nafn hans.
← Chapter 3
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 5 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9