bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Amos 5
Amos 5
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 4
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 6 →
1
Heyrið þetta orð, þetta harmljóð, sem ég flyt um yður, Ísraelsmenn!
2
Fallin er mærin Ísrael, rís aldrei aftur, flöt liggur hún á eigin landi, enginn reisir hana upp.
3
Því að svo segir Drottinn: Sú borg, sem sendir út þúsund manna lið, fær hundrað manna lið heim aftur, sú, sem sendir út hundrað manna lið, fær aðeins tíu menn heim aftur.
4
Því að svo segir Drottinn við Ísraelsmenn: Leitið mín og þér munuð lifa.
5
Leitið ekki til Betel, farið ekki til Gilgal, haldið ekki yfir til Beerseba. Því að Gilgal fer í útlegð og Betel verður að engu.
6
Leitið Drottins og þér munuð lifa. Annars mun hann þrengja sér inn í ætt Jakobs eins og eyðandi eldur og enginn slekkur hann í Betel.
7
Vei þeim sem breyta réttinum í malurt og steypa réttlætinu til jarðar.
8
Hann gerði sjöstjörnuna og Óríon og breytir niðamyrkri í heiðan morgun og degi í dimma nótt. Hann kallar á hafið og eys því á yfirborð jarðar, Drottinn er nafn hans.
9
Hann sendir eyðingu gegn hinum sterka og tortíming kemur yfir víggirta borg.
10
Þeir hata þann sem fellir réttlátan dóm í borgarhliðinu og forðast þann sem segir satt.
11
Af því að þér takið vexti af landleigu lítilmagnans og leggið skatt á kornuppskeru hans munuð þér reisa hús úr höggnu grjóti en ekki búa í þeim sjálfir, gróðursetja afbragðs víngarða en ekki drekka vínið sjálfir.
12
Já, ég veit að glæpir yðar eru margir og syndir yðar miklar. Þér þröngvið þeim sem hefur á réttu að standa, þiggið mútur og vísið hinum snauða frá réttinum.
13
Þess vegna þegir hygginn maður á slíkri tíð því að það er vond tíð.
14
Leitið hins góða en ekki hins illa, þá munuð þér lifa og þá verður Drottinn, Guð hersveitanna, með yður eins og þér hafið sagt.
15
Hatið hið illa og elskið hið góða, eflið réttinn í borgarhliðinu. Þá má vera að Drottinn, Guð hersveitanna, miskunni sig yfir þá sem eftir eru af ætt Jósefs.
16
Þess vegna segir Drottinn, Guð hersveitanna: Harmað er á hverju torgi og kveinað á hverju stræti: „Vei, vei!“ Akuryrkjumaðurinn er kvaddur til sorgarathafnar og sá sem kann harmljóð er sóttur til að flytja þau.
17
Í hverjum víngarði er kveinað því að ég mun ganga um á meðal yðar, segir Drottinn.
18
Vei þeim sem hlakkar til dags Drottins. Hvað færir dagur Drottins yður? Hann færir myrkur, ekki ljós,
19
líkt og maður flýi undan ljóni en verði á vegi bjarndýrs, komist heim og styðji hendi á vegg og þá bíti hann eiturslanga.
20
Færir dagur Drottins ekki myrkur í stað ljóss? Hann er dimmur, ekki bjartur.
21
Ég hata, ég fyrirlít hátíðir yðar. Ég hef enga ánægju af samkomum yðar.
22
Jafnvel þótt þér færið mér brennifórnir og kornfórnir lít ég ekki við þeim, né heldur matfórnum yðar af alikálfum.
23
Burt með glamur sálma þinna sem aðeins er hávaði. Ég vil ekki heyra hörpuleik þinn.
24
Réttvísi skal streyma fram sem vatn og réttlæti sem sírennandi lækur.
25
Færðuð þér mér sláturfórnir og kornfórnir þessi fjörutíu ár í eyðimörkinni, Ísraelsmenn?
26
Báruð þér þá Sikkút, konung yðar, og Kevan, stjörnuguð yðar, guði, sem þér hafið sjálfir búið til?
27
Ég mun reka yður í útlegð austur fyrir Damaskus, segir Drottinn, nafn hans er Guð hersveitanna.
← Chapter 4
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 6 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9