bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Amos 7
Amos 7
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 6
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 8 →
1
Drottinn Guð birti mér í sýn: Sjáðu, hann gerði engisprettur þegar háin tók að spretta eftir konungsslátt.
2
Þegar þær voru að ljúka við allt grængresið í landinu hrópaði ég: „Drottinn Guð, fyrirgef. Hvernig getur Jakob afborið þetta, þar sem hann er svo lítill?“
3
Þá iðraðist Drottinn og sagði: „Það skal ekki verða.“
4
Drottinn Guð birti mér í sýn: Drottinn Guð hrópaði á refsandi eld og hann gleypti hið mikla djúp. En þegar hann tók að gleypa þurrlendið
5
sagði ég: „Drottinn Guð, hættu. Hvernig getur Jakob afborið þetta, hann er svo lítill?“
6
Þá iðraðist Drottinn og sagði: „Það skal ekki heldur verða.“
7
Drottinn Guð birti mér í sýn: Sjáðu, maður nokkur stóð uppi á múrvegg með lóðlínu í hendi.
8
Drottinn spurði mig: „Hvað sérðu, Amos?“ Ég svaraði: „Lóðlínu.“ Þá sagði Drottinn: „Sjá, ég mun leggja lóðlínu við lýð minn, Ísrael. Ég mun ekki framar láta hann afskiptalausan.
9
Fórnarhæðir Ísaks verða lagðar í eyði og helgistaðir Ísraels brotnir til grunna, og ég mun rísa upp gegn ætt Jeróbóams með sverð í hendi.“
10
Amasía, prestur í Betel, sendi Jeróbóam Ísraelskonungi þessi boð: „Amos gerir uppreisn gegn þér mitt í Ísraelsríki. Boðskapur hans er óþolandi fyrir landið
11
því að Amos boðar þetta: Jeróbóam mun falla fyrir sverði og Ísraelsmenn verða fluttir úr landi sínu í útlegð.“
12
En við Amos sagði Amasía: „Sjáandi, farðu héðan og flýðu til Júda. Þar geturðu unnið fyrir mat þínum sem spámaður.
13
En þú getur ekki haldið áfram að koma fram sem spámaður í Betel því að það er konunglegur helgistaður og ríkismusteri.“
14
Amos svaraði Amasía og sagði: „Ég er ekki spámaður og ekki lærisveinn spámanns, heldur fjárhirðir og rækta mórber.
15
En Drottinn sótti mig til hjarðarinnar og Drottinn sagði við mig: Farðu og starfaðu sem spámaður fyrir þjóð mína, Ísrael.
16
En hlustaðu nú á orð Drottins: Þú hefur sagt: Þú mátt ekki starfa sem spámaður gegn Ísrael og ekki flytja spámannleg orð gegn ætt Ísaks.
17
Þess vegna segir Drottinn: Eiginkona þín verður skækja í borginni, synir þínir og dætur munu falla fyrir sverði, landareign þinni verður skipt með mælisnúru og sjálfur munt þú deyja í óhreinu landi. Ísraelsmenn verða fluttir úr landi sínu í útlegð.“
← Chapter 6
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 8 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9