bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Amos 3
Amos 3
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 2
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 4 →
1
Heyrið þetta orð sem Drottinn talaði gegn yður, Ísraelsmenn, og gegn öllum þeim kynstofni sem ég leiddi út af Egyptalandi:
2
Af öllum kynstofnum jarðar hef ég aðeins valið yður. Þess vegna kalla ég yður til ábyrgðar fyrir öll afbrot yðar.
3
Verða tveir menn samferða nema þeir hafi áður mælt sér mót?
4
Öskrar ljón í skóginum hafi það enga bráð? Grenjar ljónshvolpur í bæli sínu nema hann hafi engu náð?
5
Fellur fugl til jarðar hafi enginn hæft hann? Hrekkur gildra í lás á jörðinni nema eitthvað hafi í hana komið?
6
Verður hafurshornið þeytt í einhverri borg án þess að íbúarnir óttist? Kemur böl yfir borg hafi Drottinn ekki komið því til leiðar?
7
Því að Drottinn Guð gerir ekkert án þess að opinbera fyrirætlun sína fyrir þjónum sínum, spámönnunum.
8
Ljónið öskrar − hver óttast ekki? Drottinn Guð talar − hver spáir ekki?
9
Kallið út yfir hallirnar í Asdód og hallirnar í Egyptalandi og segið: Safnist saman á fjöllunum við Samaríu og sjáið sundrungina í borginni og ofbeldið sem þar er framið.
10
Íbúarnir kunna ekki að gera það sem rétt er, hefur Drottinn sagt. Þeir safna auði í hallir sínar með ofbeldi og yfirgangi.
11
Þess vegna segir Drottinn Guð: Fjandmenn munu umkringja landið, þeir munu brjóta niður varnir þínar og hallir þínar verða rændar.
12
Svo segir Drottinn: Líkt og þegar hirðir bjargar tveimur leggjum eða snepli af eyra úr gini ljónsins munu Ísraelsmenn sem búa í Samaríu bjargast, aðeins með fótagafl af rúmi og höfðagafl af bekk.
13
Hlustið og vitnið um þetta gegn ætt Jakobs, segir Drottinn Guð hersveitanna:
14
Já, daginn sem ég kalla Ísraelsmenn til ábyrgðar fyrir glæpi sína mun ég senda hegninguna yfir ölturu í Betel. Altarishornin verða höggvin af, þau munu falla til jarðar.
15
Þá brýt ég niður vetrarhúsið og sumarhúsið, fílabeinshúsin verða jöfnuð við jörðu og hin stóru hús munu hverfa, segir Drottinn.
← Chapter 2
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 4 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9