bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Amos 6
Amos 6
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 5
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 7 →
1
Vei hinum áhyggjulausu á Síon, hinum sjálfsöruggu á Samaríufjalli, höfðingjum hinnar fremstu meðal þjóðanna sem Ísraelsmenn leita til.
2
Farið yfir til Kalne og litist um. Haldið þaðan til stórborgarinnar Hamat og síðan niður til Gat í landi Filistea. Eruð þér þessum konungsríkjum fremri? Er land yðar stærra en þeirra?
3
Þér viljið tefja fyrir óheilladeginum en leiðið ofbeldið til hásætis.
4
Þeir hvíla á legubekkjum úr fílabeini, teygja úr sér á hægindum sínum. Þeir gæða sér á lömbum úr hjörðinni og kálfum úr alistíunni.
5
Þeir raula undir með hörpunni og finna upp hljóðfæri eins og sjálfur Davíð.
6
Þeir drekka vín úr bikurum og smyrja sig með úrvalsolíu en hryggjast ekki þótt Jósef líði undir lok.
7
Þess vegna verða þeir reknir í útlegð í fararbroddi útlaganna. Veislu slæpingjanna mun ljúka.
8
Drottinn Guð hefur svarið við sjálfan sig, segir Drottinn, Guð hersveitanna: Ég hef andstyggð á hroka Jakobs og hata hallir hans. Ég læt borgina af hendi og allt sem í henni er.
9
Ef tíu menn verða eftir í einu og sama húsi skulu þeir deyja,
10
þá sækir einhver náfrænda þeirra og þvingar hann til að bera líkin út úr húsinu, og ef hann spyr þann sem er í innsta afkima hússins: „Er nokkur eftir hjá þér?“ þá svarar hann: „Nei,“ og bætir við „þei, þei,“ því að ekki má nefna nafn Drottins.
11
Því sjá, Drottinn hefur gefið skipun, stóra húsið verður rúst og litla húsið molað niður.
12
Skeiða hross yfir kletta eða plægja menn hafið með uxum? En þér breytið réttinum í eitur og ávexti réttlætisins í malurt.
13
Þér fagnið vegna Lo Dabar og segið: Unnum vér ekki Karnaím af eigin rammleik?
14
En gætið að, ég sendi þjóð gegn yður, Ísraelsmenn, segir Drottinn, Guð hersveitanna, sem mun kúga yður frá Lebo Hamat allt að læknum á Arabasléttunni.
← Chapter 5
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 7 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9