bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Deuteronomy 17
Deuteronomy 17
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 16
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 18 →
1
Þú skalt ekki fórna Drottni, Guði þínum, nauti eða lambi sem hefur eitthvert lýti eða galla því að það er Drottni, Guði þínum, viðurstyggð.
2
Finnist hjá þér í einhverri af borgunum, sem Drottinn, Guð þinn, gefur þér, karl eða kona sem gerir það sem illt er í augum Drottins, Guðs þíns, með því að rjúfa sáttmálann við hann,
3
og fari og þjóni öðrum guðum gegn boðum mínum og sýni þeim lotningu, sólinni, tunglinu eða öllum himinsins her
4
og þú verðir þessa vísari, skaltu rannsaka það gaumgæfilega. Reynist rétt vera að slík svívirða hafi verið framin í Ísrael
5
skaltu leiða þann karl eða þá konu, sem hefur framið þetta ódæði, að borgarhliði þínu og grýta þar í hel, hvort sem það er karl eða kona.
6
Eftir framburði tveggja eða þriggja vitna skal fullnægja dauðadómi. Enginn skal líflátinn vegna framburðar eins vitnis.
7
Vitnin skulu vera fyrst til að leggja hönd á hinn dauðadæmda til að lífláta hann og síðan fólkið allt. Þú skalt uppræta hið illa sem finnst þín á meðal.
8
Reynist þér um megn að dæma eitthvert mál, hvort sem það er vegna blóðsúthellinga, persónulegra deilna eða líkamsárásar eða einhvers annars deilumáls sem upp kemur í heimaborg þinni, skaltu halda til staðarins sem Drottinn, Guð þinn, velur sér.
9
Þú skalt ganga fyrir Levítaprestana og dómarann sem þá gegnir embætti og spyrja þá ráða. Þeir munu kveða upp dóm í málinu
10
og þú skalt framfylgja dóminum sem þeir kveða upp á staðnum sem Drottinn velur. Þú skalt gæta þess að fara að öllu eftir leiðbeiningum þeirra.
11
Þú skalt fara eftir fyrirmælunum, sem þeir gefa þér, og úrskurðinum, sem þeir fella, og hvorki víkja til hægri né vinstri frá þeim dómi sem þeir kveða upp fyrir þig.
12
En sýni einhver þá ofdirfsku að hlusta hvorki á prestinn, sem stendur þarna til að þjóna Drottni, Guði þínum, né dómarann, skal hann deyja. Þú skalt eyða hinu illa úr Ísrael.
13
Öll þjóðin skal frétta þetta svo að hún fyllist ótta og sýni ekki ofdirfsku framar.
14
Þegar þú ert kominn inn í landið sem Drottinn, Guð þinn, fær þér og hefur tekið það til eignar og komið þér þar fyrir og segir: „Ég vil taka mér konung eins og þjóðirnar umhverfis,“
15
þá máttu svo sannarlega taka þér konung sem Drottinn, Guð þinn, velur. Þú mátt aðeins taka einhvern af bræðrum þínum til konungs. Þú mátt ekki setja yfir þig erlendan mann því að hann er ekki bróðir þinn.
16
Samt má konungurinn ekki afla sér of margra hesta eða leiða þjóðina aftur til Egyptalands til að afla sér fleiri hesta því að Drottinn hefur sagt við ykkur: „Þið skuluð aldrei aftur snúa þessa leið.“
17
Hann má ekki heldur taka sér of margar konur svo að hjarta hans víki ekki af réttri leið. Hann má ekki heldur draga saman of mikið af gulli og silfri.
18
Þegar hann er sestur í sitt konunglega hásæti skal hann láta gera afrit á bók af þessum lögum sem Levítaprestarnir varðveita.
19
Bókin skal vera hjá honum og hann lesa hana alla ævidaga sína svo að hann læri að óttast Drottin, Guð sinn, og haldi öll fyrirmæli og ákvæði þessa lögmáls og breyti eftir þeim
20
svo að hann ofmetnist ekki gagnvart ættbræðrum sínum og víki hvorki til hægri né vinstri frá boðinu og hann og synir hans ráði lengi ríkjum í Ísrael.
← Chapter 16
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 18 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34