bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Deuteronomy 23
Deuteronomy 23
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 22
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 24 →
1
Engum sem sætt hefur eistnamari eða er hreðurskorinn skal hleypa inn í söfnuð Drottins.
2
Engu afkvæmi blandaðs sambands má hleypa inn í söfnuð Drottins, ekki einu sinni afkomanda í tíunda lið skal heimilt að ganga í söfnuð Drottins.
3
Enginn Ammóníti eða Móabíti má vera í söfnuði Drottins, ekki einu sinni niðja þeirra í tíunda lið skal heimilt að ganga í söfnuð Drottins
4
vegna þess að þeir færðu ykkur hvorki vatn né brauð þegar þið voruð á leiðinni út úr Egyptalandi. Og það var Móab sem keypti Bíleam Beórsson frá Petór í Aram Naharaím til að bölva þér.
5
En Drottinn, Guð þinn, vildi ekki hlýða á Bíleam heldur sneri Drottinn, Guð þinn, bölvuninni í blessun því að Drottinn, Guð þinn, elskar þig.
6
Þú skalt aldrei nokkru sinni, svo lengi sem þú lifir, stuðla að velgengni þeirra og farsæld.
7
Þú skalt ekki hafa andstyggð á Edómítum því að þeir eru bræður þínir. Þú skalt ekki hafa andstyggð á Egyptum því að þú varst aðkomumaður í landi þeirra.
8
Afkomendur þeirra í þriðja lið mega vera í söfnuði Drottins.
9
Þegar þú átt í hernaði við fjandmenn þína skaltu varast allt hneykslanlegt.
10
Sé einhver með þér sem ekki er hreinn vegna þess sem hefur hent hann um nóttina skal hann ganga út fyrir herbúðirnar og má ekki inn í þær koma.
11
Að áliðnum degi skal hann lauga sig í vatni og þegar sól er sest má hann koma inn í herbúðirnar.
12
Þú skalt hafa afvikinn stað utan við herbúðirnar þar sem þú getur gengið erinda þinna.
13
Þú skalt hafa skóflu í farangri þínum og þegar þú þarft að setjast niður úti við skaltu grafa með henni holu og moka síðan yfir hægðir þínar.
14
Drottinn, Guð þinn, gengur um í herbúðunum til að vernda þig og selja óvini þína í hendur þér. Þess vegna skulu herbúðir þínar vera heilagar svo að hann sjái ekkert andstyggilegt hjá þér og snúi frá þér.
15
Þú skalt ekki selja þann þræl í hendur húsbónda sínum sem flúið hefur frá honum til þín.
16
Hann skal búa hjá þér, mitt á meðal þjóðar þinnar, hvar sem hann vill í þeirri af borgum þínum sem hann lystir. Þú mátt ekki beita hann ofríki.
17
Engin ísraelsk kona má helga sig saurlifnaði né heldur neinn ísraelskur karl.
18
Þú mátt hvorki bera skækjulaun né hundsgjald inn í hús Drottins, Guðs þíns, til þess að efna eitthvert heit því að hvort tveggja er Drottni, Guði þínum, viðurstyggð.
19
Þú skalt ekki taka vexti af bróður þínum, hvorki vexti af fé, matvælum né neinu sem lánað er.
20
Þú mátt taka vexti af útlendingi en ekki af bróður þínum svo að Drottinn, Guð þinn, blessi þig í öllu sem þú tekur þér fyrir hendur í landinu sem þú heldur nú inn í til að taka það til eignar.
21
Þegar þú vinnur Drottni, Guði þínum, heit máttu ekki draga að efna það því að ella mun Drottinn, Guð þinn, krefjast þess af þér og það reiknast þér til syndar.
22
En látir þú það vera að vinna heit reiknast það þér ekki til syndar.
23
Þú skalt efna það sem hefur þér um munn farið og gera það af fúsum og frjálsum vilja sem þú hést Drottni, Guði þínum, með eigin vörum.
24
Þegar þú kemur inn í víngarð í eigu annars manns mátt þú neyta vínberja eins og þig lystir þar til þú ert mettur orðinn en ekkert máttu setja í ílát.
25
Þegar þú kemur á kornakur í eigu annars manns mátt þú tína öx með hendinni en sigð mátt þú ekki sveifla á kornakri náunga þíns.
← Chapter 22
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 24 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
Recommended Reading
Commentary
Deuteronomy Commentaries
→
Devotional
Deuteronomy Devotional Guide
→
Get This Bible
2007 Study Bible
→