bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Deuteronomy 27
Deuteronomy 27
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 26
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 28 →
1
Móse og öldungar Ísraels gáfu fólkinu eftirfarandi fyrirmæli: „Haldið öll þau fyrirmæli sem ég set ykkur í dag.
2
Þegar þið eruð komin yfir Jórdan og inn í landið sem Drottinn, Guð þinn, gefur þér þá skalt þú reisa nokkra stóra steina. Þú skalt kalka þá að utan
3
og skrifa á þá öll ákvæði þessa lögmáls þegar þú ert kominn yfir ána, svo að þú komist inn í landið sem Drottinn, Guð þinn, gefur þér, land sem flýtur í mjólk og hunangi, eins og Drottinn, Guð feðra þinna, hefur heitið þér.
4
Þegar þið eruð komin yfir Jórdan skuluð þið reisa þessa steina á Ebalfjalli, sem ég hef gefið ykkur fyrirmæli um í dag, og kalka þá.
5
Þar skaltu einnig reisa Drottni, Guði þínum, altari. Steinana máttu ekki höggva með járnverkfærum.
6
Úr óhöggnum steinum skaltu reisa altari Drottins, Guðs þíns. Á því skaltu færa Drottni, Guði þínum, brennifórnir.
7
Þú skalt slátra á því dýrum til heillafórnar og matast þar og gleðjast frammi fyrir Drottni, Guði þínum.
8
Á steinana skaltu skrifa öll ákvæði þessa lögmáls með skýru letri.“
9
Móse og Levítaprestarnir ávörpuðu allan Ísrael og sögðu: „Ver hljóður og hlýð á, Ísrael! Í dag ertu orðinn lýður Drottins, Guðs þíns.
10
Þú átt að hlýða rödd Drottins, Guðs þíns, og fylgja boðum hans og lögum sem ég set þér í dag.“
11
Sama dag gaf Móse fólkinu eftirfarandi fyrirmæli:
12
„Þessir ættbálkar eiga að standa á Garísímfjalli til að blessa fólkið þegar þið eruð komin yfir Jórdan: Símeon, Leví, Júda, Íssakar, Jósef og Benjamín.
13
En þessir ættbálkar eiga að standa á Ebalfjalli og lýsa yfir bölvun: Rúben, Gað, Asser, Sebúlon, Dan og Naftalí.
14
Síðan eiga Levítarnir að ávarpa alla Ísraelsmenn og hrópa hárri röddu:
15
Bölvaður er sá maður sem gerir skurðgoð eða steypt líkneski sem er Drottni viðurstyggð, handaverk smiðs, og reisir það á laun. Allt fólkið skal svara og segja: Amen.
16
Bölvaður er sá sem óvirðir föður sinn eða móður. Allt fólkið skal segja: Amen.
17
Bölvaður er sá sem færir landamerki nágranna síns úr stað. Allt fólkið skal segja: Amen.
18
Bölvaður er sá sem leiðir blindan mann af réttri leið. Allt fólkið skal segja: Amen.
19
Bölvaður er sá sem hallar rétti aðkomumanns, munaðarleysingja eða ekkju. Allt fólkið skal segja: Amen.
20
Bölvaður er sá sem leggst með konu föður síns því að hann hefur flett upp ábreiðu föður síns. Allt fólkið skal segja: Amen.
21
Bölvaður er sá sem hefur samræði við nokkra skepnu. Allt fólkið skal segja: Amen.
22
Bölvaður er sá sem leggst með systur sinni, hvort heldur hún er dóttir föður hans eða móður. Allt fólkið skal segja: Amen.
23
Bölvaður er sá sem leggst með tengdamóður sinni. Allt fólkið skal segja: Amen.
24
Bölvaður er sá sem vegur náunga sinn á laun. Allt fólkið skal segja: Amen.
25
Bölvaður er sá sem lætur múta sér til að vega saklausan mann. Allt fólkið skal segja: Amen.
26
Bölvaður er sá sem ekki virðir ákvæði þessara laga með því að fylgja þeim. Allt fólkið skal segja: Amen.“
← Chapter 26
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 28 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34