bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Deuteronomy 32
Deuteronomy 32
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 31
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 33 →
1
Hlustið, himnar, og ég mun mæla, jörðin hlýði á mál mitt.
2
Kenning mín streymi sem regn, ræða mín drjúpi sem dögg, eins og gróðrarskúr á grængresi og dögg á nýgræðing.
3
Ég vil kunngjöra nafn Drottins, lofið mátt Guðs vors.
4
Hann er bjargið, verk hans fullkomin og allir hans vegir réttlátir. Hann er trúfastur Guð og svikalaus, réttlátur og hreinlyndur.
5
Svikul kynslóð og spillt brást honum; sér til svívirðu eru þeir ekki synir hans framar.
6
Þakkar þú Drottni þannig, heimska og fávísa þjóð? Er hann ekki faðir þinn og skapari, sá er gerði þig og fann þér samastað?
7
Minnstu fyrri tíða, hygg að árum genginna kynslóða. Spyrðu föður þinn, hann fræðir þig, öldungana, þeir segja þér frá.
8
Þegar Hinn hæsti fékk guðunum þjóðirnar, er hann greindi mennina að, þá setti hann þjóðunum landamerki eftir fjölda guðanna.
9
En lýður Drottins kom í hlut hans, Jakob varð erfðahlutur hans.
10
Hann fann hann í auðninni, í ýlfrandi óbyggðum, sveipaði hann, hlúði að honum, gætti hans sem sjáaldurs auga síns,
11
eins og örn sem gætir hreiðurs síns og svífur yfir ungum sínum, eins þandi hann vængi sína, greip einn þeirra upp og bar burt á vængjum sér.
12
Drottinn einn leiddi Jakob, enginn framandi guð er með honum.
13
Hann lét hann fara um hæðir landsins og nærast af ávexti jarðar. Hann gaf honum hunang úr klettum að sjúga og ólífuolíu úr tinnusteinum.
14
Hann ól hann á rjóma og mjólk úr kúm og ám, feiti lamba, sauða, hafra og Basannauta, og besta hveiti, þrúgnablóð drakkstu sem freyðandi vín.
15
Jakob át fylli sína, Jesjúrún varð feitur og sparkaði, þú fitnaðir, varðst digur og sællegur. Hann hafnaði Guði sem mótaði hann, forsmáði klettinn sem bjargaði honum.
16
Þeir vöktu afbrýði Drottins með framandi guðum, ögruðu honum með viðurstyggilegum skurðgoðum.
17
Þeir færðu fórnir illum öndum sem engir guðir eru, guðum sem þeir þekktu ekki áður, nýjum guðum, nýlega fram komnum, sem vöktu feðrum yðar engan ugg.
18
Þú afræktir bjargið sem gat þig, gleymdir Guði sem ól þig.
19
Drottinn sá það og hafnaði þeim því að synir hans og dætur vöktu heift hans.
20
Hann sagði: „Ég mun byrgja auglit mitt fyrir þeim, ætla að sjá hvað um þau verður, því að þau eru þverúðug kynslóð, börn sem engin tryggð finnst í.
21
Þau vöktu afbrýði mína með því sem ekki er guð, vöktu heift mína með fánýtum skurðgoðum. Nú vek ég afbrýði þeirra með því sem ekki er þjóð, ögra þeim með heimskum lýð.
22
Úr nösum mér standa eldtungur sem brenna niður í djúp heljar, eyða jörð og jarðargróða, leggja eld í grundvöll fjalla.
23
Ég mun hlaða að þeim hvers kyns böli, eyða á þá örvum mínum.
24
Tærandi hungri, eyðandi plágu, drepsótt og vígtenntu dýri sleppi ég lausu á þá og eitri þeirra sem í duftinu skríða.
25
Á strætum úti sviptir sverðið þá börnum, í húsum inni mun skelfingin deyða æskumann og yngismey, brjóstmylking og öldung.
26
Ég hefði getað sagt: Þeim mun ég eyða, afmá minningu þeirra meðal manna,
27
ef ég óttaðist ekki að óvinir Ísraels blekktu með því að segja: Hönd okkar er sigursæl, ekkert af þessu gerði Drottinn.“
28
En þeir eru ráðþrota þjóð, skilning hafa þeir engan.
29
Væru þeir vitrir skildu þeir þetta, væri ljóst hvað þeir eiga í vændum.
30
Hvernig fær einn elt þúsund eða tveir menn hrakið tíu þúsund á flótta nema bjarg þeirra hafi framselt þá, Drottinn ofurselt þá?
31
En bjarg fjandmannanna er ekki sem bjarg vort, um það geta óvinir vorir dæmt.
32
Vínviður þeirra er af vínviði Sódómu, hann er úr víngörðum Gómorru, vínber þeirra eru eitruð, þrúgurnar beiskar,
33
vín þeirra er slöngueitur úr banvænum nöðrum.
34
Er það ekki í minni vörslu, innsiglað í forðabúri mínu?
35
Mín er hefndin og mitt að endurgjalda er þeir gerast valtir á fótum. Skapadægur þeirra er nærri, það sem fyrir þeim liggur ber brátt að.
36
Því að Drottinn mun rétta hlut þjóðar sinnar, sýna þjónum sínum miskunn þegar hann sér að hver hönd er máttlaus, engir eftir nema kúgaðir menn og hjálparvana.
37
Þá mun hann spyrja: Hvar eru guðir þeirra, bjargið sem þeir leituðu hælis hjá
38
sem átu feiti sláturfórna þeirra, drukku vín dreypifórna þeirra? Gangi þeir nú fram og hjálpi yður, verði þeir nú vörn yðar.
39
Sjáið nú að ég einn er Guð, enginn ríkir mér við hlið. Ég deyði og ég lífga, ég særi og ég græði, enginn fær frelsað úr hendi minni.
40
Ég hef hönd mína til himins og segi: Svo sannarlega sem ég lifi að eilífu,
41
þegar ég hef hvesst mitt leiftrandi sverð, tekið réttinn í mínar hendur mun ég hefna mín á fjandmönnum mínum, endurgjalda þeim sem hata mig.
42
Ég mun gera örvar mínar ölvaðar af blóði og sverð mitt skal eta hold, þær verða drukknar af blóði fallinna og fanga og æðstu foringja fjandmannanna.
43
Himinn, fagnaðu sigri, tilbiðjið hann, guðasynir því að hann hefnir blóðs þjóna sinna og hefnir sín á fjandmönnum sínum en fyrirgefur landi þjóðar sinnar.
44
Móse kom ásamt Hósea Núnssyni og flutti þjóðinni allt þetta kvæði í heyranda hljóði.
45
Þegar Móse hafði lokið við að flytja öll þessi ákvæði fyrir öllum Ísrael
46
sagði hann: „Leggið ykkur á hjarta öll þau orð sem ég hef flutt ykkur í dag. Brýnið fyrir börnum ykkar að halda öll ákvæði þessara laga og framfylgja þeim.
47
Þau eru ekki innantóm orð sem engu skipta, þau eru sjálft líf ykkar því að sakir þessara orða verðið þið langlíf í landinu sem þið haldið nú inn í yfir Jórdan til að taka það til eignar.“
48
Þann sama dag ávarpaði Drottinn Móse og sagði:
49
„Farðu upp á Abarímfjall, fjallið Nebó í Móabslandi, gegnt Jeríkó, og horfðu yfir Kanaansland sem ég fæ Ísraelsmönnum til eignar.
50
Þú átt að deyja á fjallinu sem þú gengur upp á og safnast til þíns fólks eins og Aron bróðir þinn dó á Hórfjalli og safnaðist til síns fólks,
51
af því að þið báðir brugðuð trúnaði við mig meðal Ísraelsmanna hjá Meríbavötnum við Kades í Sínaíeyðimörkinni og virtuð mig ekki sem hinn heilaga meðal Ísraelsmanna.
52
Þótt þú megir horfa yfir til landsins færðu ekki að koma inn í landið sem ég gef Ísraelsmönnum.“
← Chapter 31
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 33 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34