bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Deuteronomy 33
Deuteronomy 33
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 32
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 34 →
1
Þannig blessaði guðsmaðurinn Móse Ísraelsmenn áður en hann dó:
2
Drottinn kom frá Sínaí, hann lýsti þeim frá Seír, ljómaði frá Paranfjöllum. Hann steig fram úr flokki þúsunda heilagra, á hægri hönd honum brann eldur lögmálsins.
3
Þú sem elskar þjóðirnar, allir þeirra heilögu eru í hendi þinni. Þeir hafa fallið þér til fóta, rísa á fætur er þú skipar.
4
Móse setti oss lög sem eru eign safnaðar Jakobs.
5
Jesjúrún fékk konung þegar höfðingjar þjóðarinnar komu saman, ættbálkar Ísraels sameinaðir.
6
Rúben skal lifa en ekki deyja út þótt hann verði fámennur.
7
Þetta sagði hann um Júda: Heyr, Drottinn, rödd Júda, leiddu hann heim til þjóðar sinnar. Hann barðist fyrir hana með höndum sínum, hjálpa honum gegn fjandmönnum hans.
8
Um Leví sagði hann: Túmmím þín hafa verið falin Leví og úrím þín þeim sem þú treystir. Þú reyndir hann hjá Mara, sóttir hann til saka við Meríbavatn,
9
hann sem sagði um föður sinn og móður: „Þau hef ég aldrei séð,“ og kannaðist ekki við bræður sína, leit ekki við börnum sínum. Því að Levítarnir héldu boð þitt og hafa varðveitt sáttmála þinn.
10
Þeir kenna Jakobi fyrirmæli þín og Ísrael lög þín. Þeir fórna þér reykelsisilmi og leggja alfórn á altari þitt.
11
Blessa þú, Drottinn, eignir hans og megi þér þóknast verk hans. Brjót þú lendar fjandmanna hans og hatursmanna svo að þeir rísi ekki upp aftur.
12
Um Benjamín sagði hann: Sá sem Drottinn elskar skal vera óhultur hjá honum. Hinn hæsti verndar hann hvern dag, hann býr milli fjallshlíða hans.
13
Um Jósef sagði hann: Land hans sé blessað af Drottni, með gæðum himins, með dögginni og vatni djúpsins sem undir hvílir,
14
með þeim gæðum sem sólin færir, ríkulegum gjöfum mánans,
15
hinu besta frá eldfornum fjöllum, því dýrmætasta af eilífum hæðum,
16
með nægtum landsins og öllu sem á því er, og náð hans sem í þyrnirunnanum býr. Þessi blessun komi yfir höfuð Jósefs, yfir hvirfil hans sem er höfðingi bræðra sinna.
17
Tignarlegur er frumburður nautsins. Horn hans eru vísundarhorn, með þeim rekur hann þjóðir undir, hrekur þær allar til endimarka jarðar. Þetta eru tugþúsundir Efraíms, þúsundir Manasse.
18
Um Sebúlon sagði hann: Gleðstu, Sebúlon, þegar þú heldur úr höfn, og þú, Íssakar, í tjöldum þínum.
19
Þeir stefna ættbálkum til fjallsins og færa þar réttar fórnir. Þeir ausa af gnótt hafsins og fjársjóðum huldum sandi.
20
Um Gað sagði hann: Lofaður sé sá sem eykur við land Gaðs. Hann liggur í leyni sem ljónynja, slítur síðan af arm og höfuð.
21
Hann valdi sér landið sem fyrst var tekið, landið sem ætlað var leiðtoganum. Þar koma höfðingjar fólksins saman. Hann framfylgdi réttlæti Drottins og lögum hans í Ísrael.
22
Um Dan sagði hann: Dan er ljónshvolpur sem kemur stökkvandi frá Basan.
23
Um Naftalí sagði hann: Naftalí er saddur af velvild, mettaður af blessun Drottins. Hann skal hljóta vatnið og Suðurlandið.
24
Um Asser sagði hann: Asser sé blessaður umfram hina synina, hann sé eftirlæti bræðra sinna og laugi fót sinn olíu.
25
Slagbrandar þínir skulu vera úr járni og eir, afl þitt endist þér alla ævi.
26
Enginn er sem Guð Jesjúrúns sem ríður yfir himininn þér til hjálpar og á skýjum í hátign sinni.
27
Hæli er hinn eldforni Guð, hér neðra eru eilífir armar hans. Hann stökkti fjandmönnum undan þér og sagði: „Eyð þeim.“
28
Síðan bjó Ísrael óhultur, lind Jakobs ein sér í landi auðugu af korni og víni þar sem himinninn lætur dögg drjúpa.
29
Heill þér, Ísrael. Hver er sem þú? Þjóðin sem Drottinn frelsaði. Hann er skjöldurinn sem ver þig, sverðið sem veitir þér sigur. Fjandmenn þínir munu skríða fyrir þér, þú munt traðka á baki þeirra.
← Chapter 32
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 34 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34